AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 74
Ferill loftmyndatöku vegna kortagerðar.
stofnunina (Lantmateriet) um leigu á nýjum og fullkomnum
myndatökubúnaöi (Wild Leica RC 30). Þessi búnaður gefur
mun betri myndir og nýja möguleika á notkun GPS-tækni
við kortagerð.
Leigðar hafa verið flugvélar til loftmyndatökunnar í u.þ.b.
tvo mánuði seinni hluta sumars, en í tæpa tvo áratugi hefur
verið notuð skrúfuþota Flugstöðvarinnar hf., af gerðinni
Rockwell Turbo Commander 690A. Vélin er með jafnþrýsti-
búnaði en með tilkomu hennar jukust afköst við loftmynda-
töku verulega og vinnuaðstaða við myndatökuna gjör-
breyttist til hins betra.
Loftmyndir eru oftast teknar í heiðskíru veðri. Skilyrði til
loftmyndatöku einhvers staðar á landinu eru að meðaltali
um 15 daga á ári, á leigutímabilinu. Tilkostnaður við flugið
er mikill og því er mikilvægt að góð nýting náist. Áður en
farið er i loftmyndaflug er gerð flugáætlun og fluglínurnar
ákvarðaðar nákvæmlega. Auk þess er ákveðið yfirgrip
mynda, filmugerð og valinn æskilegasti tími til myndatöku.
Loftmyndir fyrir kortagerð eru teknar í myndaröðum lóðrétt
niður þannig að hvert svæði sem myndað er sést á tveimur
myndum og er algengasta yfirgrip milli mynda 60%. Yfir-
gripið gerir það að verkum að hægt er að skoða myndirnar
í þrívídd en sá eiginleiki er lykilatriði við tengingu landmæl-
inga og loftmynda í kortagerð. Ef verið er að mynda sam-
felld stærri svæði eru myndaraðirnar látnar skarast á hlið-
unum 25-30%. Þettaer bæði gerttil að tengja saman mynd-
punkta en einnig sem öryggissvæði til að ekki verði eyður
milli mynda. Við flugleiðsögnina eru notuð GPS-staðar-
ákvörðunartæki og tölvubúnaður auk sérstakrar sjónpípu
sem gengur niður úr botni flugvélarinnar.
FRAMKÖLLUN OG VINNSLA
Til loftmyndatöku hér á landi eru að öllu jöfnu notaðar fjöl-
hæfar svarthvítar filmur sem ná yfir flest notkunarsvið. Hjá
Landmælingum Islands er hægt að framkalla og vinna
svarthvítar filmur og sjá um úrvinnslu eftir þeim. Litfilmur
eða innrauðar litfilmur þarf að framkalla erlendis. Úrvinnsla
litmynda fer fram hér á landi nema ef gerðar eru mjög
stórar myndir. Kostnaður við töku og vinnslu svarthvítra
mynda er mun minni en litmynda.
Loftmyndafilmur eru stórar miðað við algengar Ijósmynda-
filmur, en stór filma gefur meiri nákvæmni. Nú eru notaðar
24 cm breiðar filmur með myndfleti 23x23 cm en hægt er
að taka 280 myndir á hverja filmu. Árlega eru teknar 2000-
3000 loftmyndir hér á landi.
Landmælingar íslands varðveita í filmusafni allar frumfilmur,
en það gefur notendum möguleika á að panta úrvinnslu
eftir hvaða mynd sem er í safninu. Myndir fást gerðar á
pappír, filmu eða skannaðartil tölvuvinnslu. Annars vegar
er um að ræða snertimyndir, gerðar beint eftir frumfilmum
í stærðinni 23x23 cm en hins vegar stækkanir þar sem
hægt er að stækka hluta myndar allt að 36 sinnum. Ljós-
myndastofa stofnunarinnar er vel búin tækjum á þessu
sviði. Allir landsmenn geta fengið keyptar myndir, en þær
eru sérunnar fyrir hvern viðskiptavin.
Surtsey. Innrauð litmynd frá I9. ágúst I994. Rauði liturinn
sýnir gróður á eyjunni.© LMI.