AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Side 80
HÖNNUNAR-
SAMKEPPNI
I KEA
Itilefni af opnun nýrrar verslunar IKEA í Holta-
görðum í sumar var ákveðið að halda sam-
keppni um hönnun á hvers konar húsgögnum
með það fyrir augum að hugsanlegt væri að
framleiða verðlaunuð húsgögn og selja á vegum
IKEA. Veitt voru tvenn verðlaun, kr. 150.000 og kr.
75.000. Tímaritið AVS studdi enn fremur þetta ágæta
framtak með því að gefa ellefu áskriftir sem aukaverð-
laun.
Þátttaka í keppninni var mjög góð. Alls bárust 64
tillögur frá yfir 50 einstaklingum. Þetta sýndi vel að
hér á landi er risin upp stétt húsgagnahönnuða sem
eru vel samkeppnisfærir, hvar sem er, ef þeir fá tæki-
færi til að koma sér á framfæri.
Dómnefnd skipuðu: Finnur Fróðason, form. FHI;
Gestur Ólafsson, ritstj. AVS; Guðmundur Einarsson,
form. Fél. iðnhönnuða; Lennart Ekmark, IKEA Svíþjóð
og Sigurbjörg Pálsdóttir, IKEA íslandi.
Dómnefnd lagði til grundvallar sérstaklega þrjá þætti
við mat á tillögunum. Þeir voru formfegurð húsgagns-
ins, að auðvelt væri að pakka því og að húsgagnið
væri í anda IKEA og hentaði í framleiðslu þess.
Fyrstu verðlaun hlaut Viktor A. Ingólfsson fyrir
„BLAÐBERA". „BLAÐBERI" er geymsla fyrir endur-
nýtanleg dagblöð og tímarit og auðveldar fólki að
safna þeim saman og ganga frá þeim til endur-
vinnslu.
Önnur verðlaun hlaut Snædís Úlriksdóttir fyrir „S-
HILLU". Þessi hilla er mjög stílhrein, einföld og ódýr
í framleiðslu og pakkast vel.
Tillögurnar voru sýndar í verslun IKEA í Holtagörðum
að lokinni samkeppni og vöktu þær verðskuldaða
athygli. Verðlaunatillögurnar eru ennþá í athugun í
þróunardeild IKEA í Almhult í Svíþjóð með hugsan-
lega framleiðslu í huga.
Ekki verður annað sagt en að þessi samkeppni hafi
tekist mjög vel. Þessi góða þátttaka og þær tillögur
sem bárust gefa líka til kynna að með svipuðum hætti
gætu fleiri framleiðendur bæði hér á landi og erlendis
fært sér I nyt hugvit íslenskra hönnuða á tiltölulega
hagkvæman hátt. ■ G.
Blaðberi (Papcr boy)
I. verðlaun „blaðberi“. Höf. Viktor A. Ingólfsson.
2. verðlaun „S-hilla“. Höf. Snædís Úlriksdóttir.
Regnhlífarstandur. Höf. Ingólfur Örn Guðmundsson.
78