AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 58
ósýnileg. Töluverðu fé hefur verið
varið til fegrunar gatna og torga í
miðborginni og margir ráðamenn
trúðu því að Eyjólfur væri að hress-
ast. En öllum má nú Ijóst vera að þær
aðgerðir hafa ekki dugað og einna
helst flýtt fyrir andláti hans. Stefna
ráðamanna er að breyta Kvosinni í
einskonar safnasvæði með næturlíf-
sívafi og skella síðan á eftir sér. Að
mati undirritaðs er menningarsögu-
legt stórslys yfirvofandi.
BORGMENNING OG HÚSA-
FRIÐUN
Landfylling við Akurey og nýr flugvöllur á grynningum í Skerjafirði. Horft frá pejr sem verj5 hafa |angdvölum í
erlendum stórborgum við nám og
vestri.
Reykjavíkurflugvallar við óbreytt skilyrði í Vatns-
mýri. Það eru því mjög brýnir hagsmunir Reyk-
víkinga og íslendinga allra að finna flugvellinum
nýjan rekstrargrundvöll með þróunarmöguleikum
til framtíðar.
DREIFBÝLI í BORG
Þungamiðja byggðar á höfuðborgarsvæðinu hefur
færst hröðum skrefum inn nesið og er nú svo
komið að jafnvel verslunarmiðstöðin í Kringlunni
er að þokast úr alfaraleið. Nú þegar mótar fyrir
óreiðukenndri línubyggð frá norðaustri til suðvest-
urs í meginstefnu strandlengjunnar, með þunga-
miðju í Kópavogsdal. Ef áætlanir ráðamanna ná
fram að ganga munu uppbygging miðborgarstarf-
semi þar, ný Sundabraut og tvöfölduð Reykja-
nesbraut styrkja þessa byggðarþróun mjög.
Óhjákvæmileg afleiðing er verulega minnkað
vægi byggðar á útnesjum, vestan Elliðaáa og á
Álftanesi.
Reykjavík er dreifbýlasta höfuðborg í Evrópu og
þó víðar væri leitað. íbúum á hvern hektara hefur
fækkað mjög á undanförnum áratugum. Á svæð-
inu innan Hringbrautar og Snorrabrautar þar sem
bjuggu um 38 þúsund manns árið 1940 búa nú
t.d. um 16 þúsundir. Núverandi stefna ráðamanna
í skipulagsmálum mun leiða til enn meiri útþynn-
ingar byggðar á ókomnum árum. Sú dapurlega
staða er að því er virðist óumflýjanleg að með
auknum íbúafjölda fjarlægist höfuðborg íslands
með síauknum hraða þá stöðu að geta talist raun-
veruleg borg.
Byggðin er eins og þunn mosaskóf í landslaginu
og víðast hvar einkennalítil og miðborgin nánast
störf vita vel að saga kynslóðanna er varðveitt í
götum og torgum. Á meðan borgin er langlíf koma
einstök hús og hverfa þegar hlutverki þeirra er
lokið. Og þau taka breytingum í rás tímans. í heil-
brigðri borg er á hverjum tíma í gildi forsögn sem
tryggir eðlilega og átakalausa þróun hennar og
samhengið í menningarsögu genginna kynslóða
án þess að beitt sé öfgakenndri verndunarstefnu.
Mjög fáar byggingar eru verðar verndunar umfram
eðlilegan líftíma sinn. Svæði sem verða fyrir
barðinu á slíkri stefnu deyja og drepið breiðist
gjarnan út ef þessi svæði eru ekki lengur lifandi
hlutar borgarinnar. Ofvernduð svæði staðna og
deyja vegna þess að þau bæta ekki lengur við sig
sögu og reynslu kynslóðanna.
LÍF í BORG
Mikil útþynning byggðar hefur neikvæð áhrif á
daglegt líf allra íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Byggðin er í heild mjög óskilvirk og leiðir beint til
lakari lífsafkomu íbúanna þar en efni standa til.
Byggðin er dýr í uppbyggingu og í rekstri. Hún
leiðir til sóunar á tíma og fjármunum íbúanna og
gerir þeim lífsbaráttuna erfiðari en hún þyrfti að
vera. Fullyrt er að landsmenn allir líði fyrir þétt-
býlisvandann á höfuðborgarsvæðinu.
Vítahringur síaukinnar einkabílanotkunar er
auðvitað vel þekktur. Við eyðum með ári hverju æ
lengri tíma daglega undir stýri til að sinna einföld-
um erindum á yfirfullum og menguðum akbrautum
og það of oft í sjálfum vinnutímanum. Og stöðugt
meiri hluti af tíma okkar fer í að vinna fyrir rekstri
einkabílsins. Oft verður heldur lítið afgangs af
tíma og fé til að njóta raunverulegra lífsgæða.
56