AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 12

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 12
ÞEMA / THEME IBUÐIR I KJOLFAR MÓDERNISMANS Ola Nylander, arkitekt SAR, MSA, PhD Riff Raff, grunnmynd / plan Grunnmynd, Riff Raff byggingin í Zúrich. Arkitektar Meili og Peter með Staufer & Haslers. Herbergi eru tengd eftiröxli, hvert við annað. Sjónlína er úr anddyri eftir allri fbúðinni. Fon/itni - hvernig litur herbergið út sem er fjærst á öxlinum? / Floorplan, Riff Raff building, inZurich. The architectural firm Meili and Peter with Staufer & Haslers. Rooms are axially connected with each other. The line of sight runs from the hall along the entire buiiding. Curiosity - what does the room furthest away along the axis look like? Nútíma íbúðir þurfa að vera eitthvað annað og meira en tæki til að búa í. Nútíma íbúðir þurfa að hafa eitthvað meira til að bera en að fullnægja ákvæðum í byggingarreglugerð og að þar sé notuð ný tækni. Það er ekki það sama að koma til móts við þarfir iðnverkafólks fyrir hvíld og hreinlæti og að fullnægja þörfum þeirra sem vinna í þekkingariðnaði fyrir hvatningu og ímyndir. Nútíma hönnun íbúðarhúsnæðis þarf að við- urkenna þessar þarfir samtímans og búa til umhverfi sem virkar hvetjandi á hugmyndaflug og ímyndir. Nútíma byggingarlist er hluti af upplifunariðnaðinum. Nútíma heimili þurfa að hafa til að bera það sem ávannst með módernismanum, þ.e. betri loftræstingu, dagsljós, gott skipulag athafna og nútíma tækj- abúnað, en einnig bjóða upp á vel hugsaða og allt að því sviðsetta ark- itektóniska upplifun. Nútíma íbúðir þurfa að bjóða upp á fjölbreytta upplifun eins og t.d. öxulmyndun eða sjónlínu sem nær í gegnum íbúðina og auðveldar fólki að skynja íbúðina, möguleika á því að ganga í hring og ákveðin þrep í skynjun, kontrasta milli opinna og lokaðra rýma, vel hönnuð deili, við- eigandi efnisval og meðhöndlun á dagsljósi, almennum rýmum og marka milli rýma innanhúss og utan. Þessi atriði eru mjög mikilvæg í íbúðum á núverandi tímaskeiði í kjölfar módernismans. Þessi atriði eru öxulmyndun, hreyfing og rými til almennra nota. Eitt þeirra atriða sem eru mjög mikilvæg í nútíma íbúðum er öxul- myndun. Öxullinn tengir saman nauðsynlega hluta íbúðarinnar. Öxullinn tengir saman ákveðin rými og myndar ákveðna keðju af her- bergjum. Það gefur íbúðum ákveðin gæði að geta séð inn í eitt eða fleiri herbergi frá ákveðnu rými. Heildarrýmisáhrifin eru mynduð með mismunandi lýsingu, stærðum og innihaldi. Rýmin og mismunandi stærð þeirra, staðsetning og litir mynda heildaráhrifin. Þannig er margskonar upplifun mynduð. Annað atriðið sem er mjög mikil- vægt í nútíma íbúðum er hreyfing gegnum íbúðina. Hreyfing fólks gegnum íbúðina eftir öxlinum tíma- setur upplifunina, framtíðina, núið og fortíðina. Núið - upplifun á raun- veruleikanum - á sér stað þegar við upplifum það sem við höfðum haldið þegar við gengum inn í upphaf öxulsins. Þetta er nokkurs konar aha! - tilfinning. Efnisleg og sjónræn áhrif eru geymd og verða hluti af heildaráhrifunum, minning- unum, fortíðinni sem við geymum í hugum okkar. Öxulmyndun og hreyfing eru áhrifamikil atriði við að skynja listræna hlið byggingarlistar - og jafnframt leið til að snerta þann sem skynjar byggingarlist á mjög djúpan og náinn hátt. Skipulag rýmis í nútíma íbúðum er grundvallað á hringferli. íbúarnir geta gengið úr herbergi í herbergi. Þetta fyrirkomu- lag gefur tilfinningu fyrir miklu rými, jafnvel í litlum íbúðum. Þannig hreyf- ing um íbúðir er forsenda fyrir því að hægt sé að upplifa arkitektúrinn í heild. Hreyfing í gegnum mörg sam- tengd herbergi styrkir þessi áhrif. Rými til almennra nota er þriðja atriðið í nútíma íbúðum. Samkvæmt hefð módernismans var hvert her- bergi klefi eða blindgata sem hafði sérstaka, ákveðna notkun. í nútíma íbúðum - eftir módernismann - ákveða íbúarnir sjálfir til hvers á að nota herbergin i íbúðinni. Almenn rými bjóða upp á sveigjanleika í notkun. Möguleiki á því að ákveða notkun mismunandi herbergja gefur íbúðum mjög mikið gildi, þar sem arkitekt eða eigandi hefur ekki ákveðið að neitt herbergi skuli vera svefnherbergi vegna stærðar, efn- isvals eða innréttinga. Breytileiki gefur íbúðum líka mjög langan líf- tíma. Hægt er að komast inn í þetta almenna rými úr mörgum áttum og það gefur íbúum því mjög margar leiðir milli herbergja. Sumir arkitektar eru nú þegar farnir að hanna íbúðir með þessi markmið að leiðarljósi. Um þetta eru mörg áhugaverð dæmi sem hægt er að læra af. Meðfylgjandi myndir sýna nokkur alþjóðleg dæmi um nútíma íbúðir þar sem boðið er upp á fjölbreytta arkitektóniska upplifun. Það virðist Ijóst að góðar framtíðar íbúðir verða hannaðar með því að gera sér grein fyrir mikil- vægi byggingarlistar og þeim dram- atísku hughrifum sem hún hefur fram að færa. ■ 1 2 avs
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.