AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 17

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 17
Lækkun byggingarkostnaðar íbúðarhúsnæðis Jón Ólafur Ólafsson arkitekt, verkefnisstjóri / Siguröur Harðarson arkitekt / Helgi Smári Gunnarsson verkfræðingur / Finnur Torfi Magnússon verkfræðingur Aðdragandi íbúðalánasjóður veitti Batteríinu og VSÓ ráðgjöf rann- sóknarstyrk að upphæð kr. 1,5 milljónir á árinu 2001 til þess að kanna þætti sem gætu orðið til lækkunar bygg- ingarkostnaðar og þar með leigukostnaðar íbúða í þeim tilgangi að gera leiguíbúðir að viðráðanlegri valkosti í húsnæðismálum, hvort sem er á vegum félagslegra eða einkaaðila. Rannsóknarverkefnið var fólgið í að yfirfara rýmiskröfur byggingarreglugerðar og þær megin lausnir sem áhrif hafa á byggingarkostnað og gera samanburð við sam- bærilegar norrænar reglugerðir. Leitað var svara við þeirri spurningu hvort lækka megi byggingarkostnað með endurskoðun eða niðurfellingu lágmarkskrafna byggingarreglugerðar um herbergj- astærðir ofl. Á þessum grundvelli var síðan stillt upp skematískum íbúðalausnum og kostnaðarlegar afleiðing- ar tillagna skoðaðar. Almennt Þó Ijóst sé að fjölmargir þættir eins og fjármögnunar- skilyrði, vaxtakjör og skattar hafi áhrif á byggingarkost- nað þá hafa hertar kröfur byggingarreglugerðar um lágmarksstærðir einstakra rýma íbúðarhúsnæðis leitt til aukins byggingarkostnaðar. Þetta á sinn þátt í því að lágtekju-fjölskyldur hafa átt í erfiðleikum með kaup íbúða og leigugjald endurspeglar óhjákvæmilega aukinn bygg- ingarkostnað. Forsendur Leiguíbúðir hafa sérstöðu á húsnæðismarkaðnum vegna þess að íbúar þeirra eru oftar láglaunafólk, eða fólk í milli- bilsástandi s.s. ungt fólk að hefja búskap, námsmenn, aldraðir og öryrkjar. Fjölskyldur leigjenda eru yfirleitt minni og búseta í hverri íbúð styttri. Öllu þessu fólki er mikil- vægt að búa við lága leigu. Fyrir marga getur valið staðið milli þess að hafa ekki ráð á að kaupa eða leigja “venjulega” íbúð (byggða skv. gildandi reglugerð) og að kaupa eða leigja minni en „jafngóða" íbúð. íslenskar reglugerðarkröfur í gildandi byggingarreglugerð eru ýmsar lágmarkskröfur sem áhrif hafa á heildarverð íbúða. Hún er ákvarðandi um tæknilegan búnað og öryggi íbúðarhúsnæðis ásamt fyrirkomulagi og stærðum einstakra rýma. Ekki liggja fyrir faglegar rannsóknir eða athuganir til grundvallar reglugerðarákvæðum um rýmisstærðir og rökin fyrir þessum kröfum eru ekki alltaf augljós. Tilgangurinn með þeim hefur þó örugglega verið að tryggja gæði íbúða sem byggðar eru. Rík ástæða er til að endurskoða ákvæði byggingar- reglugerðar um lágmarks rýmisstærðir íbúða og horfa frekar til nauðsynlegs athafnarýmis og starfsemi. Stærð íbúðar og einstakra rýma er aðeins einn þáttur í heildargæðum hennar. Þótt stór hluti eldri íbúða upp- fylli ekki skilyrði núgildandi byggingarreglugerðar er engu síðri spurn eftir þeim m.a. vegna fjölbreytni. Þær hafa oft sérkenni sem gera þær spennandi og áhugaverðar að viðbættum jákvæðum skipulagsþáttum eins og stað- setningu, þéttleika, skjólsæld og gróðursæld. íbúðargæði felast í viðunandi leigu- eða húsnæðis- kostnaði. Gildandi byggingarreglugerð gerir litlar kröfur til sólar- birtu í íbúðum, skjóls á svölum eða í garði. Gildandi byggingarreglugerð takmarkar frelsi til að forgangsraða því rými sem til umráða er. Ákvæði um lágmarksstærð einstakra rýma og tengingar milli þeirra stuðla að því að einsleitu framboði íbúða í fjölbýli. Gildandi byggingarreglugerð tekur lítið mið af raunver- ulegri fjölskyldusstærð, breyttum lífsháttum og þörfum, mismunandi forgangsröðun og ólíkum áherslum. Lifnaðarhættir hafa breyst mikið. Gestakomur eru fátíðari og algengt að fjölskyldur leigi sér sali fyrir stærri gestaboð. Stórar stofur eru því ekki jafn nauðsynlegar og áður. Fólk kaupir tilbúinn mat í ríkari mæli. Matartilbúningur eins og sláturgerð, sultun og söftun hefur smám saman laggst af. I því Ijósi má slá af núgildandi kröfum um lág- marksstærðir eldhúsa. Fólk þvær, jafnvel daglega og þvottaferlið er orðið einfalt og hljóðlátt. Staðsetning þvottavéla í nánd við þá staði þar sem óhreinn þvottur „verður til“ t.d. á baðher- bergi, er því eðlileg. Á flestum heimilum eru nú ein eða jafnvel fleiri tölvur og tölvutengd heimavinna æ algengari. Samanburður norrænna reglu- gerða Danskar og norskar byggingarreglugerðir gera ekki sambærilegar rýmiskröfur og sú íslenska. Reglugerðir Dana og Norðmanna miðast ekki við að gæði íbúða verði tryggð með lágmarkskröfum um flatarmál einstakra rýma. Þeirra kröfur snúast meir um rúmtak (m3) eða um uppfyllingu ákveðinna þarfa. avs 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.