AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 26

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 26
Blikastaðir og Btikastaðaiand, séð iátt til þéttbýlis i Mosfellsbæ, Vesturlandsvegur fyrir miðri mynd og Hamrahlíð til hægri. / Blikastaðir farm and the BHkastaðir area, looking towards Mosfellbær, Vesturtands road goes through the centre of the picture, Hamratlið to the right. haldnir í húsakynnum ÍAV í apríl og maí sl. og stýrði greinarhöfundur fundum en fulltrúi ÍAV kynnti ramma- skipulagið. Unnið var með fjóra rýnahópa: 1. Fólk á aldrinum 24-38 ára sem búsett er í nág- renni Blikastaðalands, þ.e. í Grafarvogs-, Árbæjar- og Grafarholtshverfum í Reykjavík og í Mosfellsbæ, 10 manns. 2. Fólk á aldrinum 40 til 55 ára búsett á svipuðum slóðum og í hópi 1,13 manns. 3. Fólk á aldrinum 30-45 ára búsett vítt um höfuðborgarsvæðið, 10 manns. 4. Fagfólk í skipulagsmálum: þrír arkitektar, einn landslagsarkitekt, þrír verk- eða tæknifræðingar, tveir fasteignasalar og einn þygg- ingameistari, 10 manns. í heildina tóku því 43 aðilar þátt í matsverk- efninu í rýnihópum, álíka margar konur og karlar. Valið í rýnihópana byggðist m.a. á því að talið var að hverfið höfðaði mest til yngra fólks sem byggi í úthverfum í ná- grenni Blikastaðalands. í meginatriðum var ofangreindu MST likani fylgt í þessu matsverk- efni. Lögð var mikil vinna í að móta spurningalista með um 40 spurn- ingum. Þar af voru 10 spurningar um bakgrunn þátttakenda, 5 um núverandi húsnæðisaðstæður, 20 um húsnæðis- og búsetuóskir og 5 spurningar um Blikastaðalandið og skipulag þess. í síðustu spurn- ingunum var verið að leita eftir fyrstu viðbrögðum fólks við skipulagi Blikastaðalands og skipulagi þess án þess að nokkur kynning hefði farið fram. (Aðeins ein Ijósmynd af svæðinu og yfirlitsuppdráttur af rammaskipulaginu fylgdu með spurningalista). Vel tókst til með seinni hluta fundanna þar sem skipulagstillagan var kynnt og miklar umræður voru í öllum hópunum um kosti og galla hennar. Á fundunum var mikið lagt upp úr því að allir kæmust að með sínar ábendingar og að allar ábend- ingar væru jafnréttháar. Flöfðu marg- ir þátttakendur orð á því að fundirnir hefðu bæði verið skemmtilegir og lærdómsríkir. Bæði úr spurninga- þætti og umræðuþætti komu fram margar ágætar ábendingar sem landeigendur (ÍAV), skipulagsyfirvöld í Mosfellsbæ og þeir sem vinna að deiliskipulagi á einstökum hlutum Blikastaðalands munu nýta sér. Sem dæmi um atriði sem mikið var rætt um voru: umferðaröryggi við tengibraut sem gengur í gegn- um hverfið, stærð á hverfistorgum og æskilegt val á þjónustu við þau, mismunandi aðkoma og frágangur lóða við fjölbýlishús og fjölbreytni í húsagerðum. Eins og við mátti búast kom fram töluverður munur á viðhorfum fólks bæði eftir kyni og aldri. Greinarhöfundur tók saman greinargrðir fyrir ÍAV um svör og ábendingar einstakra hópa sem og samantekt um helstu ábendingar hópanna í heild. Þá vann greinar- höfundur forsögn að deiliskipulagi næstu 5 reita á Blikastaðasvæðinu (svæðinu er skipt upp í 24 reiti til deiliskipulags) sem byggðist að stórum hluta á niðurstöðum á mati rýnihópanna af rammaskipulagstil- lögunni. Lokaorð Það er mat greinarhöfundar og þeirra sem tóku þátt í matsvinnunni á skipulagi Blikastaðalands að þessi vinna hafi verið mjög vel heppnuð. Ekki vegna þess að rammaskipu- lag Teiknistofunnar Arcus hafi verið slæmt og komið hafi verið í veg fyrir meiriháttar skipulagsmistök. Heldur að um er ræða stórt íbúðasvæði þar sem í framtíðinni munu búa um 6 þúsund manns og mikilvægt er því að leita sjónarmiða bæði almennings og annarra fagmanna á vinnslu- stigi áður en slíkar tillögur eru festar í sessi í deiliskipulagi. Þarna hefur einkafyritækð ÍAV riðið á vaðið og lagt í kostnað við að móta þessi vinnubrögð sem nýtast munu öðrum aðilum sem vilja vanda til skipulags fyrir ný íbúðahverfi. Það var álit þeirra fagmanna sem tóku þátt í þessari vinnu að þessi vinnubrögð ættu að vera fastur liður við skipulag nýrra íbúðahverfa og ekki síður við endur- skipulag byggðar í grónum hverfum. ■ 26 avs
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.