AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Page 39
eru þeim mun meiri verður efnis-
kostnaðurinn. Sama máli gegnir um
vinnu byggingarmanna. Opinberir
aðilar hafa í áratugi verið að auka
kröfur. Margir sérfræðingar telja
að hús séu orðin óhóflega efnism-
ikil og dýr. Byggingarstjóri Háskóla
íslands hefur lýst þeirri skoðun að
með því að endurskoða byggingar-
reglugerðina megi lækka byggingar-
kostnað um 15% og prófessor við
verkfræðideild HÍ tjáði greinarhöfundi
að hugsanlega væru íslensk hús
allt að 20% of efnismikil. Enn eru
menn að auka kröfurnar og bygg-
ingarkostnaður hækkar. í Danmörku
hefur verið svipuð þróun en Danir
hafa séð að sér og eru nú að endur-
skoða byggingarstaðla með það fyrir
augum að lækka byggingarkostnað.
Samkostnaður
Samkostnaður er til dæmis hönnun,
eftirlit, verkstjórn og stjórnun bygg-
ingarfyrirtækja. Þessi kostnaður
er alltaf að hækka vegna þess að
byggingaryfirvöld leggja stöðugt
fleiri verk á hönnuði og framkvæmd-
aaðila. Samkostnaður er nú mun
hærri en fyrir aldarfjórðungi. Störf
arkitekta, verkfræðinga og annarra
tæknimanna verða sífellt tímafrek-
ari. Sama máli gegnir um stjórnun
byggingarfyrirtækja og verkstjórn
á byggingarstað. Þá er ótalið að
samskipti við byggingaryfirvöld taka
stöðugt meiri tíma. Þetta eykur kost-
nað og lengir byggingartíma svo
að fjármagnskostnaður vex einnig.
Afgreiðslutimi gagna hjá bygging-
aryfirvöldum er oft óhóflega langur
og kostnaðarsamur. Til þess að
útskýra hvernig sífellt nýjar kröfur
hækka byggingarkostnað má nefna
útreikninga á stærðum húsnæðis.
Byggingaryfirvöld lögðu nýlega þá
kvöð á húsbyggjendur að þeir skil-
uðu svonefndri skráningartöflu með
uppdráttum af hverju húsi. í töfluna
ber að færa fjölmargar stærðir sem
hönnuðir verða að reikna. Þegar allt
er gert upp þarf hönnuður að reikna
nálægt 25 rúmmáls- og flatarmáls-
stærðir fyrir hverja íbúð. Reikna þarf
flatarmál samkvæmt 8 ólíkum skil-
greiningum! Reikna verður auk ann-
ars flatarmál á útitröppum og glugg-
aopum á útveggjum. Kostnaðurinn
sem af þessu hlýst hækkar að
sjálfsögðu hönnunarkostnað ásamt
öðrum áþekkum kvöðum sem stöð-
ugt verða til.
íþyngjandi eftirlit
Samskipti við byggingaryfirvöld
taka alltaf aukinn tíma og eru bygg-
ingaraðilum dýr. Fyrir húsbyggj-
endur er mikilvægt að afgreiðsla
gangi fljótt, reglur séu skýrar og
ekki flóknari en nauðsyn krefur.
Starfsemi byggingareftirlits þarf
að taka tillit til byggingaraðila eigi
að halda niðri byggingarkostnaði.
íþyngjandi sérreglur eru hins vegar í
gangi og mörg dæmi má nefna um
reglur sem aðeins valda töfum og
kostnaði. Þetta má útskýra með litlu
dæmi um afgreiðslu eignaskiptayfir-
lýsinga. Byggingarfulltrúi fer yfir atriði
í þessum skjölum og fæst þeim ekki
þinglýst nema staðfesting hans liggi
fyrir. í Reykjavík fást ekki eignaskipt-
ayfirlýsingar samþykktar nema þeim
fylgi litaðar teikningar af viðkomandi
húsi. Allt rými skal auðkenna með
lit og sameign vera gul. Þinglýstar
eignaskiptayfirlýsingar eru varðveittar
hjá sýslumanni. Þeir sem lesa þær
fá afhent venjuleg Ijósrit. Á þeim
sjást auðvitað engir litir og gular línur
hverfa. Svona kröfur gera samskipti
við byggingaryfirvöld stirð og flókin,
lengja afgreiðslutíma og hækka rek-
strarkostnað þeirra sem skipta við
embættið. Allt veldur þetta hækkun
byggingarkostnaðar. ■
avs 39