AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Page 51
4) Þegar uppsetningu eininga er
lokið er húsið tilbúið að utan.
5) Útveggir eru stillanlegir með hlið-
sjón af einangrunarþykkt.
6) Möguleiki er á að byggja hús
hærri en einnar hæðar.
7) Möguleiki er á ódýru skriðrými
undir neðsta gólfi.
8) Unnt er að mynda bogadregna
útveggi í láréttu plani.
BYGGINGAR-
KOSTNAÐUR
Jón Eiríksson, byggingarmeistari,
sem smíðað hefur fjölda timburhúsa,
gerði eftarfarandi kostnaðarsaman-
burð 04.03. 2002:
„Tekinn er saman byggingar-
kostnaður á stálhúsi annars vegar
og timburhúsi hins vegar. Innifalið
í kostnaðaráætluninni er 120 m2
hús, fullbúið að utan með glerjuðum
gluggum og að innan er það fullein-
angrað með rakavarnarlagi og gólf-
plötum. Ekki er tekið tillit til sökkuls
sem er eins í báðum tilvikum.
Timburhúsið leggur sig á kr.
5,400,000 en stálhúsið á kr.
3,820,000.“
í framangreindum verðsamanburði
á timburhúsi og stálhúsi kemur fram
að þegar húsið er tilbúið að utan
og tilbúið til klæðningar að innan
er húsið um það bil hálfnað. Þetta
þýðir að sú hagræðing sem felst í
stálhúsinu fer öll fram á fyrri helmingi
byggingar hússins. í samanburðinum
kemur fram að fyrri helmingur stál-
hússins er um 30% ódýrari en fyrri
helmingur timburhússins. Stálhúsið
er því um 15% ódýrara en timbur-
húsið.
REYNSLAN
Fyrir tveimur árum var fyrsta húsið af
þeirri gerð sem lýst er hér að framan
byggt að Tjörn á Skaga og má segja
að beðið hafi verið með framhaldið
á meðan séð væri hvernig því reiddi
af. Vegna góðrar reynslu er nú svo
komið að eitt hús sem ætlunin er
að reisa á höfuðborgarsvæðinu er á
teikniborðinu. ■
Tjörn þann 15. ágúst 2004
1. Ástæða þess að valið var stálhús frekar en timburhús var fyrst og
fremst að stálhúsið var mun ódýrara en timburhúsið og fljótlegra
í uppsetningu. Einn stærsti kostur þess var einnig að stálhúsið er
óbrennanlegt. í okkar tilfelli er vatn af skornum skammti og slökkvilið
staðsett í 25 km fjarlægð.
2. Hafist var handa við að reisa húsið 18. júní 2002 og flutt inn í það
fullklárað og frágengið 12. september sama ár. Var aldrei á bygg-
ingarstigi unnin yfirvinna. Smiðir voru oftast tveir eða þrír í senn að
vinna.
3. Húsið er einangrað með steinull í hólf og gólf og kynt með raf-
magnsþilofnum. í húsinu er jafn og góður hiti og kyndingarkostnaður
í lágmarki.
4. Húsið er vel hljóðeinangrað, bæði umferðarhljóð og veðurhljóð heyr-
ast alveg í lágmarki.
5. Sprungur innanhúss eru ekki teljandi og til að finna þær þarf að leita
mjög vandlega.
6. Þann 14. janúar 2004 gerði mikið ofsaveður hér, þar sem vindur fór
upp í 35-40 metra á sekúndu. Þessa veðurs varð ekki meira vart
hér innandyra heldur en í steinhúsi. Það var varla að maður fyndi
titring og veðurhljóð var mjög lítið.
7. í þau tæpu tvö ár sem við höfum búið í þessu húsi hefur það reynst
í alla staði afar vel og engin atvik komið upp sem óvænt geta talist.
Miðað við þá reynslu þykir manni full ástæða tii að byggja fleiri
svona hús þar sem þau eru bæði ódýr og virðast mjög traust. Vonar
maður að fleiri beri gæfu til að byggja samskonar hús.
Með bestu kveðju, Baldvin Sveinsson"
Unnsögn eiganda og íbúa stálhússins að Tjörn á
Skaga
avs 51