Harmonikublaðið - 15.09.2020, Page 20

Harmonikublaðið - 15.09.2020, Page 20
ÞA GÖMLU GOÐU \Krx? Að þessu sinni gluggum við í 1. tölublað 3. árgangs af Harmonikunni. Þar má lesa um afrek harmonikuliðsins í Þórshöfn í Færeyjum ásamt ýmsu fleiru sem kemur þarna fram. Það liðu hins vegar 16 ár þangað til Harmonikufélag Þórshafnar tók þátt í landsmótinu á Neskaupsstað. Birt með góðfúslegu leyfi Hilmars og Þorsteins Rúnars. Frá Færeyjum Harmonikuliðið frá Torshavn hefur gert það gott í sumar. Þeir fóru til Danmerkur og tóku þátt í stærsta harmoníkumóti Dana sem var haldið í Bindslev í Hirtshals dagana 29.-30. og 31. júlí s.l. Frá Færeyjum fóru þeir með m/s Winston Churchill og á leið- inni út var efnt til einskonar hæfi- leikakeppni meðal farþega og varð Harmonikuliðið í fyrsta sæti. Það var dálítill kvíði í mönnum því þetta var fyrsta ferð þeirra til að taka þátt í har- monikumóti og var því gott fyrir sjálfstraustið að vinna keppnina um borð í skipinu. Það var tekið vel á móti þeim í Danmörku og eftir að þeir höfðu leikið fyrsta lagið þá hvarf þeim allur kvíði þvi þeim var þakkað með dynjandi lófaklappi. Voru það ekki síst færeysku lögin „Vágagellan" og „Rasmus“ sem hlutu góðar við- tökur. Dagskráin var afar fjölbreytt og skemmtileg sagði Kristin Gærdbo for- maður Harmonikuliðsins. Við spiluð- um á tónleikum á daginn og fyrir dansi um kvöldið ásamt 700 öðrum harmoníkuleikurum. Eins og venjan er á svona mótum þá selja allir plötur og snældur sem þeir hafa gefið út. Færeyingarnir höfðu sig lítið í frammi og var það ekki fyrr en síðasta daginn að þeir tóku sig virkilega á og seldu allar snældur sem þeir höfðu með- ferðis á skömmum tíma. Dönsk blöð og svæðisútvarpið gerðu mótinu góð skil og var Harmonikuliðið á hverjum degi í svæðisútvarpinu meðan á mót- inu stóð. En Harmonikuliðið fór víðar og þegar færeyska ferjan Norröna fór síðustu ferðina á þessu ári milli Fær- eyja og íslands, þá voru þeir fengnir til að spila fyrir dansi og skemmta far- þegum á leiðinni. Vonandi eiga þeir eftir að koma aftur til íslands svo að íslenskir harmoníkuunnendur fái tækifæri til að kynnast þeim. Þ.Þ. 20

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.