Kirkjublaðið - 17.12.1945, Blaðsíða 4

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Blaðsíða 4
2 KIKKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 BRÆÐRALAG Á síðastliðnum vetri var stofnað í Reykjavík kristilegt félag stúdenta, er nefnist „BræðraJag“. Stofnendur þess voru allmargir stúdentar í guð- fræðideild Háskólans, ásamt prófessor Ásmundi Guð- mundssyni. Tilgangur félagsins er að efla starfandi kristindóm og bræðralag í anda Jesú Krists. Þessi félagsskapur er ekki félag guðfræðinga eða guðfræðinema eingöngu, heldur er því ætlað að Það varð að samkomulagi, að félag þetta tæki að sér að annast og sjá um útgáfu Jólablaðs Kirkju- blaðsins að þessu sinni, og var kosin þriggja manna ritnefnd til þess að annast það starf. f ritnefndinni eiga sæti: Kristján Bjarnason, stud. theol., séra Jón Thorarensen og Andrés Ólafsson stud. theol. Vafalaust má telja, að þetta Jólablað hefði hvorki orðið eins vandað né fjölbreytt að efni, ef starfs Guðfræðideild Háskólans. verða félag allra þeirra stúdenta, bæði yngri og eldri, er láta vilja sig. kristindómsmálin einhverju skipta og efla vilja frjálshuga og víðsýni í trúmálunum. í félagi þessu eru nú milli 20 og 30 manns, þar á meðal biskup landsins og nokkrir af þjónandi prest- um höfuðstaðarins. Hefir það haldið allmarga fundi og rætt mörg þau mál er kristindóm og kirkju varða. Ennfremur gekkst félagið fyrir sérstöku útvarps- kvöldi á síðastliðnum vetri, þar sem nemendur guð- fræðideildar innan félagsins fluttu erindi og kvæði og hlaut þessi dagskrár-liður yfirleitt mjög góða dóma. þessarar ritnefndar hefði eigi notið við. Hafa og margir hinna ungu og efnilegu nema guðfræðideild- arinnar lagt fram skerf í blaðið og er blaðinu það mikil ánægja að geta kynnt lesendum sínum þessa ungu menn, hugsanir þeirra og áhugamál. Það er vel, að stúdentar hafa nú bundizt samtök- um til eflingar víðsýns kristindóms. Þess er hin mesta þörf, að allir, og þá ekki sízt hinir ungu mennta- menn, gefi gaum hinum andlegu málum og því, að menning framtíðarinnar verður að reisa á megin- hugsjónum Jesú Krists, ef vel og giftusamlega á að fara. Formaður félagsins er Emil Björnsson, stud. theol.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.