Kirkjublaðið - 17.12.1945, Blaðsíða 6

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Blaðsíða 6
4 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 Sérn Gu'Smundur Sveinsson: Ekki þeim stærstu af höfðingjum heims ekki í höllum með gullskarti seims ekki með hljómandi stríðsþöndu stáli ekki í stormgný af skrautofnu máli, heldur var boð þetta borið um nótt blásnauðum hirðum svo milt og rótt, en bjó yfir lausn sérhvers manns, sem er mæddur; Óttist ei! Yður er frelsari fæddur. Og enn hljóma orð þau um gervallan heim, þó heimurinn leggi ekki eyrun að þeim, því mönnum finnst vald þeirra veiklega byggt, en voldugra allt, sem er gullmagni tryggt. Þegar menn þjást og þung gerist lund, þrýtur þeim allt, sem er lóð og pund, en hin sama er lausn sérhvers manns, sem er mæddur: Óttist ei! Yður er frelsari fæddur. um er batnað, og láta 125 krónur í sparisjóð handa honum, svo að hann hafi einhverja peninga þegar hann kemur heim af spítalanum“. „Þetta er ágæt hugmynd“, svaraði pabbi. „En hafið þið gjört ykkur grein fyrir því, að þá fáið þið engar jólagjafir sjálf ?“ „Já, það vitum við“, sagði Siggi, „en við viljum vinna það til, því að við eigum svo gott en aumingja Tommi og mamma hans eiga svo bágt“. Þeim aðfangadegi glevmdu systkinin aldrei. Pabbi þeirra fór með þeim heim til fátæku konunnar og þau gáfu henni jólagjöfina. Og þegar þau afhentu henni sparisjóðsbókina handa Tomma og sögðu henni, að pabbi þeirra ætlaði að útvega honum vinnu þegar hann væri orðinn svo frískur að hann gæti eitthvað gjört, þá fór hún að gráta. „Guð hefir ekki gleymt mér“, sagði hún, „— og ég sem hélt að hann skipti sér ekkert af mér! Nei, hann man eftir mér, blessaður". Systkinin áttu rnargar ferðir á spítalann næstu mánuðina, til að heimsækja Tomma, þegar hann fór að hressast, og ekki þótti honum lítið vænt um þessa nýju vini sína. Stundum lá líka leið þeirra heirn til móður hans, og þá höfðu þau meðferðis einhverja sendingu til hennar frá foreldrum sínum. Þau liöfðu einu sinni orð á því við pabba, að aldrei hefðu þau lifað ánægjulegri jól. Og hann sagði: „Það skil ég vel. Því að þið hélduð jólahátíð með hugarfari Krists, og þið munið að hann sagði: „Svo framar- lega sem þér hafið gjört þetta einum þessara minna minnstu bræðra, þá hafið þér gjört mér það“. Séra Friðrik Hallgrímsson endursagði.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.