Kirkjublaðið - 17.12.1945, Side 8

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Side 8
6 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 skáldinu, sem kvað svo fagurlega um móður sína, er hann minntist jólanna, frá því hann var barn: — Páll H. Árnason: Síðan hóf hún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál, aldrei skyn né skilningskraftur minn skild-i betur jólaboðskapinn. — Vér minnumst þess, sem alin erum upp í sveit, hversu allt var bjart og hlýtt, þegar jólahátíðin gekk í garð, og litla baðstofna heima hljómaði af sálma- söng. Allt var svo hátíðlegt og unaðslegt, og það engu síður þótt auður og allsnægtir væru ekki fyrir hendi. Og hvað allir voru sáttir við allt og alla. Við fyrir- gáfum fúslega bróður okkar eða systur, þótt þau hefðu gert okkur eitthvað til ama, tókum í hönd þeirra og leiddumst kringum jólatréð og sungum jólasálma í sátt og samlyndi, nátengdari vinar- og kærleiksböndum en nokkru sinni fyrr. Og var þetta ekki einmitt tilgangur þess, sem jólahátíðin er helg- uð, að kenna mönnunum að fyrirgefa hverjir öðrum og tengja þá saman í félagi kærleika og dreng- skapar. Þrátt fyrir margvíslega áþján og hörmungar, færa jólin huggun og sálarfrið, sem enginn harðstjóri fær á brott numið. Jólin eiga allir jafnt. Ljós þeirra skín jafnt í hreysi sem höllu, og engu síður í huga þess, sem býr við fátækt en hins, sem unir við auð og alls- nægtir. Og einmitt sökum þessa hafa jólin svo mikið gildi fyrir líf vort, að þau flytja öllum jafnt ljós kærleika og samhugðar, sem enginn mannlegur kraft- ur er fær um að slökkva. Og vér vonum og óskum, að framtíðin feli í skauti sér frið og einingu, svo að vér getum á næstu jólum litið friðsaman heim, þar sem tækni og menning öll er notuð í þágu framfara og eflingar bræðralags hinna ýmsu þjóða, þar sem þekking og skilningur á mannlegum rétti og mann- legri tilveru situr í fyrirrúmi. Svo bjóðum vér jólin velkomin, jól inn í hvers manns sál. Lag: „Guð þú blessar alla, alla“. Veit mér skjótt að stríða, stríða, stríða drottinn fyrir þig. Veit mér þrótt að líða, líða, líða slíkt, er krefur mig. Því þyngra boð, því styrkri stoð, þitt stríð mér verði sólarroð. Gef mér snilld að tala, tala, tala þínu máli guð. Gef mér mildi að svala, svala, svala og glæða lífsfögnuð. Lífið þér, ljóma ber, ef lífsins skynjum tilgang vér. í byggðum heims er svelja, svelja svelja haturs, grimmdar, rógs. Frá dýrkun seims, rís helja, helja, helja, aflgjöf vígaplógs. Graf þann klið, guð ég bið, gef að allir keppi að frið. Flestir vilja hefna, hefna, hefna skerðing frelsis, rétts. Fáir skilja að stefna, stefna, stefna á guð, án fals og pretts. Sem einlægt ljóð, sé líf hjá þjóð, ljúfi guð, þá varða slóð. Hefnd og orsök dvíni, dvíni, dvíni guð, í þjóða sál. Geislans átök skíni, skíni skíni og leysi vandans mál. Af eining frið, fast ég bið, hver fyllist sál, um jarðar svið.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.