Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 10

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 10
8 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 inn er komið. Þó að veðrið sé gott og sjórinn sléttur, ríður á að fara alltaf nákvæmlega eftir sundmerkj- unum, því að það verður þá að vana, sem verður dýr- mætur, ef veður breytist og sjór spillist. — Við verðum nú fljótir fram á leirinn, drengur minn, því að norðurfallið hjálpar til.“ Við rérum nú um stund, og við og við flugu svart- fuglar eða teistur fram hjá, og nú fóru hnísur að sjást, sem komu snöggvast upp og blésu. Loks sagði Bjarni mér að hætta að róa, og lögðum við inn árarn- ar. Bjarni settist aftur á bitann og rétti mér færið, sem ég átti að nota. Það var nýlegt. Fylgdi því járn- sakka, úbúin með traustum fatsendum. Ég batt nú öngulinn á tauminn, og svo hafði ég falsara með, en svo nefndist lóðaröngull, sem var látinn fylgja með. Var taumurinn frá honum bund- inn utan um síldina á stóra önglinum. Ég beitti öðru á falsarann, en hafði stóra öngulinn beran. Allt gerði ég þetta eftir því, sem Bjarni sagði mér, og renndi svo færinu. Mér fannst það fara svo langt niður, að ég ætlaði að stöðva það, en Bjarni sagði mér, að það myndi stöðvast sjálft, og ætti ég þá að taka grunnmál, eins og hann sýndi mér. Ég gerði þetta og byrjaði nú að keipa. Þá dró Bjarni væna ýsu, beitti óðara aftur, renndi og dró aðra strax, en ég keipaði og var farinn að hugsa, að þetta yrði til einskis. En allt í einu tók færið að titra, og rétt í því var kipp í það. Ég beið nú ekki boðanna og tók á móti, en þá ágerðust rykkirriir og kippirnir. Ég varð nú brátt altekinn af því að bjarga drættinum, sem á færinu var. Þegar sakkan kom upp, sá ég, að þetta var afbragðsvæn stórýsa á falsaranum, og gekk mér vel að ná henni inn í skipið. Þá mælti Bjarni: „Nú er ein merkilegasta stundin í lífi þínu runnin upp. Þú hefur dregið fyrsta fiskinn þinn. — Það er Maríufiskurinn, — sem kenndur er við heilaga Guðsmóður og var gefinn kirkjunni fyrr- um, en nú á að gefa hann elztu konunni í sveitinni. Renndu ekki aftur fyr en ég segi þér. Farðu nú fyrst fram í barkann, krjúptu þar niður, þakkaðu Guði fyrir Maríufiskinn þinn og biddu hann að gefa þér nú alla tíma lífsbjörg og leiða þig um hafsins vegi, þannig að þú megir verða lánsmaður.“ Ég gerði þetta og bað fyrir mér, og lét Bjarni mig hafa þessi vers yfir með sér, sem ég svo lærði af honum síðar. Ég byrja reisu mín, Jesú, í nafni þín. Höndin þín helg mig leiði, úr hætu allri greiði. Jesú mér fylgi í friði með fögru englaliði. I voða, vanda og þraut vel ég þig förunaut. Yfir mér virztu vaka og vara á mér taka. Jesús mér fylgi í friði með fögru englaliði. Þá sjávarbylgjan blá borðinu skellur á, þín hægri hönd oss haldi og hjálpi með guðdóms valdi. Jesús mér fylgi í friði með fögru englaliði. Svo signdi ég mig og stóð upp. Bjarni fékk mér nú hníf og sagði mér að skera krossmark í báðar kinn- arnar á ýsunni og ganga frá henni frammi í barkan- um, svo að hún færi ekki saman við annan fisk. Þegar ég hafði gert þetta, beitti ég öngulinn minn og renndi aftur. Fór ég nú að draga aftur. Allt var það stórýsa, sem við fengum. Sama blíðan hélzt, og kipptum við tvisvar eða þrisvar. Þegar komið var fram yfir fallaskiptin, héld- um við heim. Þegar við höfðum lent og aflinn var kominn á land, hafði ég dregið 17 ýsur, en Bjarni eitthvað um 70. Nú sagði Bjarni mér að fara úr brók- inni og taka Maríufiskinn og fara heim í Vesturbæ með hann til Ingigerðar Ketilsdóttur. Hún var þá elzta kona byggðarinnar. Ég tók nú Maríufiskinn minn og labbaði af stað með hann heim til gömlu konunnar. Ég gekk inn gömul göng og kom inn í baðstofu með daufri birtu. Þar lá gamla konan í innsta rúm- inu við vesturvegg baðstofunnar. Ég fór formálalaust með ýsuna inn að rúmi hennar og mælti: „Ingigerður, þetta er hann Nonni í Kotvogi, ég er kominn til þess að gefa þér Maríufiskinn minn.“ Nú færðist heldur en ekki líf í gömlu konuna. Hún greip léttann, sem yfir henni hékk, með báðum höndum og reisti sig upp í rúminu og sagði mér að koma fastaðrúmstokkn- um. Ég gerði það. Tók hún nú með báðum skjálfandi höndunum yfir höfuð mér, þakkaði Guði fyrir þennan Maríufisk og aðra þá, sem hún hafði fengið, og bað Guð þess heitt og innilega, að ég mætti verða lán- samur, fengsæll og duglegur sjómaður á öllum óförn- um leiðum mínum á sjónum og í lífinu yfirleitt. Þannig lýkur frásögn minni um Maríufiskinn og þennan fagra og bjarta vordag, er ég dró fisk úr sjó í fyrsta skipti. Tel ég þennan dag alltaf einna mesta hátíðisdag í lífi mínu. Og þó að ég yrði eigi sjó- maður, eiga engin líkingarorð betur við um líf og bar- áttu mannanna, í hvaða stöðum sem þeir lenda, en þau, að allt sé í raun og veru ein stórfelld sjóferð frá vöggu til grafar um hið mikla haf mannlegrar bar- áttu. Og á þeirri leið minni mun ég ávallt telja bæna- gjörðina á sjónum þennan dag og fyrirbænir gömlu konunnar í lága bænum mikils virði.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.