Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 11

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 11
KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 9 Atidrés Ólafsson, stud. theol.: GIDFRÆIIIDEILDARIIVNAR Sá, er gengur út sunnudagsmorgun hér í Reykja- vík, getur næstum því furðað sig á því, að þetta skuli vera sami bærinn, sem kvöldið áður hljómaði af söng og dansi og hverskyns glaðværð. Þá var ekki hægt að þverfóta fyrir glaðværu fólki og bílum, sem allt rann eftir götunum í einni mikijli straumiðu. En sunnudagsmorgun er allt svo rólegt og hljótt. Maður og maður sézt á stangli. Kona sézt skjótast með mjólkurílát í næstu mjólkurbúð, eða maðurinn hennar er svo elskulegur að leysa hana af hólmi þennan morgun. Eitt og eitt bílöskur heyrist í fjarska, ann- ars er allt hljótt. Jæja, þetta er svo sem allt ósköp eðlilegt. Fólkið hvílir sig og sefur út eina morgun vikunnar, sem það hefir aðstöðu til þess. Sumir eru að safna kröftum undir erfiði næstu vinnuviku, aðrir að jafna sig eftir glaðværð laugardagskvöldsins. Það eru þó ekki allir, er sofa til hádegis á sunnu- dögum. Þeir, sem ganga suður hjá Háskóla sunnu- dagsmorgun, komast að raun um það. Það er allt fullt af lífi og fjöri, af fólki, sem að vísu er ekki hátt í loft- inu, allt saman börn, flest á aldrinum 6—12 ára. Ileil- ar fylkingar af þeim koma streymandi úr öllum átt- um. Séu þau spurð, hvert þau séu að fara, er svarið: I Háskólann. Þau eru að fara í sunnudagaskóla Guð- fræðideildar Háskólans. Nú um nokkurra ára skeið hefir Guðfræðideild Háskólans starfrækt sunnudagaskóla á hverj um vetri. Skólinn starfar vétrarmánuðina okt.-—apríl. Þegar sunnudagaskólinn var stofnaður, var það einkum tvennt, sem vakti fyrir mönnum með stofnun hans. Að gefa nemendum Guðfræðideildai'innar kost á nokkurri æfingu í ki'istindómsfræðslu ungbarna ogum leið að bæta úr brýnni nauðsyn á fjölgun slíkra skóla hér í bæ. Reynslan hefir sýnt, að um hvoi'ttveggja hefir skólinn orðið til mikillar blessunar. Þótt ekki sé nema að tala við börn og umgangast þau er ekki sama, hvernig það er gert. Það vita þeir bezt, er það reyna. Þess misskilnings gætir hjá mörgum, að barnafræðsla sé starf, sem ekki skipti svo miklu máli, hvernig leyst sé af hendi, það, að fræða börn geti hver og einn, er vilji leggja sig í slíkt. Þetta er hin rammasta villa. Barnafræðsla, í hverri mynd sem er, er mjög ábyrgðarmikið og mikilvægt starf, ef leysa á það af hendi eins og vera ber. Hugir barnanna eru næmir og ómótaðir, og þess vegna skiptir það svo miklu máil, að börnin öðlist þegar í stað réttan skiln- ing á því atriði, sem um er að ræða í það og það skiptið. Sunnudagaskólinn starfar undir umsjón kennara guðfræðideildarinnar, en kennarar við skólann eru nemendur deildarinnar og kennarar. Sem laun fyrir starf sitt hafa þeir ánægjuna, sem hlýzt af starfinu. Hins vegar fá börnin á hverjum sunnudegi litla lit- prentaða mynd, „ljósgeisla“, sem stendur í sambandi við texta hvers sunnudags. Aftan á myndina er prentað mál, sem börnin eru látin festa sér í minni og læra. Þá hafa þau einnig fengið smáhefti til þess að festa myndirnar inn í. Hvorttveggja þetta fá þau endurgjaldslaust. Á hverjum sunnudegi laust fyrir kl. 10 safnast börnin saman í anddyri Háskólans. Þar er þeim raðað niður í flokka eftir aldri. Hver kennari hefir sinn vissa aldursflokk. Tilgangurinn með þessari aldurs- skiptingu barnanna er sá, að flokka þau niður nokk- urn veginn eftir andlegum þroska þeirra, því kennsl- una verður vitanlega að miða við það. Þannig þýðir

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.