Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 15
KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945
13
honum inn í, þá minnstu þess, að honum þótti jatan
ekki of óvirðulegur hvílubeður fyrir sig. Mörg heim-
ili og mörg hjörtu eru skreytt og opin um jólin
eins og gistihús, og mörgum er boðið inn, til að þiggja
beina. En Jesú er ekki boðið þar inn. Það er ekki
rúm fyrir hann í gistihúsinu. f hugum manna er
mörgu veitt móttaka, opið hús fyrir nýjungum,
en ekki síður fyrir mörgum gömlum gestum.
Meðal þeirra má nefna ágirnd og nautnasýki,
makindaþrá og metnaðargirnd, hatur, öfund og
hefnigirni og hvað sem þeir heita allir þeir leiðu
þrásetugestir, sem hafa hagnýtt sér gistivináttu
hjartans og sezt upp hjá manninum. Því að hjá mörg-
um sannast sagan um það, þegar illur andi fór út
af manni einum, en sneri aftur og fann það sópað og
prýtt til móttöku, tók með sér sjö anda sér verri og
settist upp að nýju. Þar sem svo er ástatt, er ekki
rúm fyrir Jesú í gistihúsinu. Mennirnir elska myrkrið
meira en ljósið, af því að verk þeirra eru vond.
Láttu það ekki þig henda. Segðu upp hinum leiðu
setugestum. Þeir eiga ekki heima hjá þér. Þeir hafa
þrengt sér inn, fyllt huga þinn, útrýmt þaðan því,
sem m^ð réttu á heima hjá þér. En það er andi
Krists. Bú honum bústað í hjarta þínu. Lærðu að
þekkja hann sem einkavin þinn. Bind við hann æfin-
lega gistivináttu. Þá verða jólin alveg sérstaklega
hátíð fyrir þig, fæðingarhátíð frelsarans í sjálfum
þér. Þótt þú eigir ekkert nema sundurkramið hjarta
að bjóða honum að bústað, þá mun hann ekki neita
að þiggja heimboð þitt. Hann stendur við dyrnar og
knýr á. Hans djúpa elska þráir að ná til hvers synd-
ara, og hreinsa úr honum allt hið illa og óhiæina,
svo að hann verði fullorðinn guðssonur, eins og hann
er í upphaíi skapaður til að verða.
En héi* er ekki heldur nóg að samsinna í orði. Tíi
að veita Kristi viðtoku Verðurðu að útrýma úr huga
þínuih öliu því, sem gagnstætt er anda hans, og
fyrst og fremst þinni eigin sjálfselsku. og stærilæti.
Þú verður að gefa honum allt þitt bezta, eins og sannri
gestrisni sæmir, hið dýrmætasta, sem þú átt í eigu
þinni. Þú verður að láta hann ráða fyrir vilja þín-
um, þannig, að þú gerir vilja hans að þínum vilja.
Þú verður að lúta honum sem drottni þínum. Því
þú verður að minnast þess, að gesturinn, sem kemur
til þín á jólakvöldið, er hinn smurði drottinn. Llugs-
aðu þér, hvílík sæmd þér veitist! Hann, sem er öllum
æðri, vill koma og gista hjá þér!
Bjóð hann velkominn með orðum Eydalaskáldsins,
er segir í hinu undurfagra kvæði sínu af stallinum
Þér gjöri ég ei rúm með grjót né tré,
gjarnan læt ég hitt í té:
vil ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Þá mun guð gefa þér í sannleika gleðileg jól!
Greniskógur.