Kirkjublaðið - 17.12.1945, Side 24

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Side 24
22 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 Svavar Hermannsson: JÓL 1 BERLÍN Á jólunum 1944 hafði hið mikla heimsstríð staðið í 5J4 ár. Hver þjóðin á fætur annari hafði dregizt inn í hringiðu styrjaldarinnar og orðið að þola þján- ingar þær, sem stríðinu voru samfara. Höfuðborg Þýzkalands, Berlín, hafði vissulega ekki farið var- hluta af ógnum stríðsins. Eins og annarsstaðar í landinu hafði hér nálega hver fjölskylda misst einn eða fleiri meðlimi, sem fallið höfðu eða særzt á víg- völlunum. Ofan á þetta bættist langvarandi skortur á lífsnauðsynjum og æ harðari vinna, og sífelldur ótti um líf og eignir vegna hinna miklu loft- árása, er undanfarna mánuði hafði sérstaklega verið beint gegn Berlín og þegar höfðu lagt mikinn hluta borgarinnar í rústir. Undir þessum dapurlegu kring- umstæðum bjuggust nú Berlínarbúar til að fagna jólunum eftir föngum. Hver sem gat reyndi að út- vega sér jólatré, þó að það væri oft aðeins hægt með því að ferðast marga kílómetra. En ánægjusvipur- inn skein af hinum fölu og þreytulegu andlitum fólksins, er hraðaði sér heim til heimila sinna með þó ekki væri nema litla grenihríslu í hendinni, er nota átti sem jólatré. Skömmu fyrir jól hafði borg- arstjórnin úthlutað aukaskammti af matvælum og ofurlitlu af kaffi í tilefni af jólunum. Loksins rann upp aðíangadagur jóla. Berlínarbúar risu snemma morguns úr rekkju að venju, klæddust og drukku gervikaffið sitt og hröðuðu sér síðan til vinnu. Kvöldið áður hafði verið loftárás, og ennþá lá reykjarmökkur yfir borginni, og römm reykjar- lykt barst að vitum manns. Rústir hinna hrundu og brunnu húsa voru draugalegar á að líta í hálfrökkr- inu. Allstaðar streymdi fólkið til vinnustöðva sinna og hugsaði með eftirvæntingu um, hvað dagurinn og aðfangadagskvöldið mundi færa. Myndu óvinirnir nú koma með drápsvélar sínar einnig þetta kvöld, eða mundi hinum þreyttu og hrjáðu Berlínarbúum leyft að njóta sinnar fátæklegu jólagleði í friði. í flestum fyrirtækjum og opinberum stofnunum var aðeins unnið til hádegis. Fólkið óskaði hvort öðru gleðilegra jóla, og hver og einn flýtti sér til heimilis síns. Heima fyrir höfðu húsmæðurnar ærið að starfa. Af litlum efnum varð að búa til jólamatinn og helzt að baka eitthvað með kaffinu, sem í þetta sinn var ósvikið baunakaffi í stað gervikaffisins, sem var hinn dag- legi drykkur. Ef til vill var einnig til eitthvað af niðursoðnum ávöxtum, eða öðru gcðgæti, sem geymt hafði verið til hátíðarinnar. Um kvöldið kl. 6 fóru margir Berlínarbúar að hlýða á jólamessu. Messað var í þeim kirkjum, er ennþá höfðu ekki orðið sprengikúlum óvinanna að bráð, en annars á einhverjum öðrum stað. Margar af hinum fegurstu kirkjum Berlínar voru löngu eyði- lagðar af loftárásunum. Þar á meðal hin fagra Kaiser- Wilhelm-Gedáchtniskirche. Aðeins turnar hennar gnæfðu við himin svartir og sótugir. Að innan var allt brunnið og eyðilagt. Að aflokinni kirkjugöngu settust síðan Berlínarbúar til borðs og létu sér verða gott af jólamatnum, þó að hann væri í fátæk- legasta lagi. En skortur í mat og drykk var þó ekki það, sem aðallega olli Berlínarbúum hryggðar um þessi jól. Sorgin um fallna ástvini og óttinn um örlög þeirra, er ennþá börðust á vígvöllunum, kölluðu fram margt andvarp og olli því að jólagleðin varð í þetta sinn aðeins dauft endurskin fyrri daga.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.