Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 48

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 48
sonar og Áka Jakobssonar um að sjómönnum og öðru verkafólki verði við útreikning skatta veittur frádráttur af tekjum sínum fyrir hlífðarfötum. Tillagan flutt af Tryggva Helgasyni o. fl. Um fjárframlög til hlutatryggingasjóðs. 23. þing Alþýðusambands Islands skorar á Alþingi að veitt verði á fjárlögum fyrir árið 1953 til hluta- tryggingasjóðs og nemi það ekki lægri upphæð en þeirri sem greitt var úr sjóðnum á þessu ári vegna síldarver- tíðarinnar s. 1. sumar. Tillagan flutt af Sigfúsi Bjarnasyni, Ólafi Sigurðs- syni o. fl. FRÁ VIÐSKIPTAMÁLANEFND. Um innflutning og álagningu vara. Hin síðari árin hefur reynslan orðið sú, að milli- ríkjaverzlunin byggist æ meir á vöruskiptum, og í flestum tilfellum eru þær vörur, sem þannig fást, mun dýrari en þær vörur, sem hægt er að kaupa í frjálsum viðskiptum. Þá telur þingið fyllstu nauðsyn til að ekki verði leyfður innflutningur gegn frjálsum gjaldeyri, (ekki bátagjaldeyri) nema á nauðsynjavöru sem ekki er hægt að framleiða í landinu sjálfu, svo og til kaupa á nauðsynlegum hráefnum til iðnaðarins. Vegna síhækkandi vöruverðs bæði vegna þess, að varan hækkar á erlendum markaði, svo og vegna þess, hvað mikið af vörum er flutt inn á frjálsum gjaldeyri bátaútvegsins og kaupmenn miða álagningu sína í % vís miðað við tollafgreitt verð varanna, þá hefir álagn- 46

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.