Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Síða 63
hindra slíkt, og sjái sambandsstjórn um framkvæmd
á þessu atriði.
Félög í þorpum séu þó undanþegin þessu ákvæði.
Nefndin hafi skilað áliti sínu fyrir 1. desember 1953.
I nefndina voru kosnir:
Jón Sigurðsson, Oskar Hallgrímsson, Sigurjón Jóns-
son, Eðvarð Sigurðsson, Jón Rafnsson.
Ýmis méS
Um umferðadómstól.
23. þing A. S. I. samþykkir að skora á dómsmálaráð-
herra, að hann hlutist til um að á Alþingi því, sem nú
situr, verði flutt frumvarp til laga um stofnun umferða-
dóms, á þeim grundvelli, sem felst í bréfi frá Bifreiða-
stjórafélaginu Hreyfli til dómsmálaráðherra dags. 16.
cktóber s. 1., sem hér fer á eftir:
„Á fundi, sem haldinn var í félagi voru 7. þ. m., var
eftirfarandi tillaga samþykkt af öllum fundarmönnum:
„Eins og öllum er ljóst fer umferðaslysum ört fjölg-
andi. Og samfara því eru oft kveðnir upp dómar yfir
bifreiðastjórum, sem mörgum þykja óréttlátir, og þar
sem dómar þessir eru oft þungir og geta þessvegna haft
hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir þann bifreiðar-
stjóra og fjölskyldu hans, sem verður fyrir því óhappi
að verða aðili að umferðarslysi, er því mjög nauðsyn-
legt, að þeir dómendur sem slíka dóma kveða upp, hafi
gagngera þekkingu á umferðamálum og meðferð bif-
reiða, svo öruggt megi telja, að dómar sem kveðnir eru
61