Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 13.11.2000, Blaðsíða 29

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 13.11.2000, Blaðsíða 29
marks umsaminni launaþróun, að dregið yrði skerðingarhlutfalli barnabóta og skerðingarmörk hækkuð, að hafin yrði vinna við endurbætt fæðingarorlof og hafin yrði skoðun á kostum og göllum fjölþrepa skattkerfis. Með yfirlýsing- unni var komið til móts við áherslur Alþýðusambandsins að mörgu leyti en því miður kom í ljós að ríkisstjómin var ekki tilbúin til að taka á kjörum aldraðra og öryrkja. Þar er sérstakt áhyggjuefni staða þeirra hópa sem aðeins fá greiðsl- ur frá almannatryggingakerfinu. En annað er að skila sér: Við höfum þegar séð boðaðar breytingar á barnabótum og breytt fæðingarorlof hefur verið lögfest. Félagar, Síðustu kjarasamningar snerust um margt fleira en krónur og aura. Víða var samið um margvísleg önnur mál og má nefna breyttan veikindarétt og viðbót- ar lífeyrisspamað. Ég vil þó nefna menntamálin sérstaklega. Með samningun- um var komið á fót öflugum starfsmenntasjóðum almenns launafólks og versl- unarfólks sem miklar vonir eru bundnar við. Þessi ánægjulegu tíðindi endur- spegla þá síauknu áherslu sem hreyfingin hefur lagt á menntamálin á undan- förnum árum enda er bætt menntun, starfsmenntun og þjálfun, undirstaðan að sterkari stöðu launafólks á vinnumarkaði í framtíðinni. A þessu tímabili átti verkalýðshreyfíngin líka þátt í stofnun MENNTAR, nýs samstarfsvettvangs at- vinnulífs og skóla. Með stofnun MENNTAR var verið að staðfesta vilja at- vinnulífsins í heild, stærstu heildarsamtaka launafólks og atvinnurekenda á al- mennum vinnumarkaði, til að koma sameiginlega að uppbyggingu og þróun menntunar með virkari hætti en áður og taka um leið á sig ríkari ábyrgð og skyldur í þeim efnum. Með stofnun MENNTAR var verið að staðfesta að nýj- ar áherslur og nýjar kröfur kalli á öflugri vettvang fyrir samstarf atvinnulífs og skóla til að eiga skoðanaskipti og miðla af reynslu og þekkingu, takast á við sameiginleg verkefni og ryðja nýjar leiðir í uppbyggingu og þróun menntunar. Ég hef ekki vikið sérstaklega að öflugu starfi Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu, Félagsmálaskóla alþýðu og Mímis - Tómstundaskólans að fræðslu- og menntamálum en um það má meðal annars lesa í framlögðum skýrslum. MFA hefur aukið áhersluna á að skipuleggja lengra starfsnám og tekist vel. MFA skólinn fyrir atvinnulausa hefur einnig sannað sig sem mjög gott úrræði en það hefur sýnt sig að um 80% nemenda fá vinnu eftir skólann og halda henni áfram. En ég vil þó geta sérstaklega um öflugt starf að félags- málafræðslu og vel heppnaða uppstokkun á formi Félagsmálaskóla alþýðu. Þar hafa annir verið styttar í viku og eitt afmarkað viðfangsefni tekið fyrir í hvert sinn. í kjarasamningunum 1997 var einnig samið um aukinn rétt trúnað- armanna til að sækja sér félagsmálafræðslu. Aukinni áherslu á félagsmálafræðslu ber að fagna og það er því ánægjulegt 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.