Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 13.11.2000, Page 96
og menningarmálum fyrir launafólk. MFA skal í þessu skyni fá til umráða
Menningar- og fræðslusjóð sambandsins og fé sem sambandinu er veitt af fjár-
lögum til fræðslu- og menningarmála.
Stjórn MFA skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara sem kjömir eru
af ársfundi til tveggja ára í senn. Annað árið skulu kosnir þrír aðalmenn og
einn til vara, en hitt árið skulu kosnir tveir aðalmenn og einn til vara. Arsfund-
ur getur ákveðið að láta fara fram kosningu um tiltekið sæti stjórnarmanns þó
að kjörtímabili þess sem í sætinu situr sé ekki lokið. Sá sem kosinn er til setu
í stjórn MFA, samkvæmt þessu ákvæði, skal aðeins kosinn til loka hins upp-
haflega kjörtímabils.
MFA skal starfa samkvæmt sérstakri reglugerð sem samþykkt er á ársfundi
ASÍ.
Ákvæði til bráðabirgða
I fyrsta skipti sem kosið er eftir þessum lögum á þingi ASÍ árið 2000 skulu
þrír aðalmenn og einn varamaður kosnir til tveggja ára en tveir aðalmenn
og einn varamaður skulu kosnir til eins árs.
43. grein
Listasafn ASÍ
Alþýðusambandið starfrækir Listasafn Alþýðusambands íslands (Listasafn
ASI) sem er eign Alþýðusambands Islands. Safnið er stofnað samkvæmt ósk
og að frumkvæði Ragnars Jónssonar forstjóra til minningar um Erlend Guð-
mundsson í Unuhúsi. Meginhlutverk safnsins skal vera að varðveita og hafa til
sýnis fyrir almenning stofngjöf Ragnars Jónssonar til safnsins, svo og önnur
listaverk í eigu þess, bæði í eigin sýningarsal og á vinnustöðum. Listasafnið
skal starfa samkvæmt sérstakri reglugerð sem samþykkt er á ársfundi ASÍ.
X. kafli
Um sjúkrasjóði
44. grein
Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu úr sjúkrasjóði eins aðildarfélags, öðlast
þann rétt hjá nýju aðildarfélagi skv. þeim reglum sem þar gilda eftir einn mán-
uð, enda haft hann fram að því rétt hjá fyrra félaginu.
Öllum félögum innan sambandsins er skylt að setja sjúkrasjóði félagsins
reglugerð sem skal hljóta staðfestingu miðstjómar ASÍ. Miðstjórn skal við um-
fjöllun um reglugerðina hafa hliðsjón af viðmiðunarreglum sem ársfundur
samþykkir. Endurskoðaðir reikningar sem sýna stöðu sjúkrasjóðs, áritaðir af
löggiltum endurskoðanda, skulu sendir miðstjóm fyrir maílok ár hvert.
94