Ský - 01.06.1997, Qupperneq 10

Ský - 01.06.1997, Qupperneq 10
Finnski kvikmyndatökumaðurinn Jyrki Arnikari við tökur í Almannagjá. Það hljómar ótrúlega en er engu að síður satt að síðastliðið sumar kafaði kvik- myndatökumaður ofan í Geysi til þess að festa á filmu sjónarhorn af þessum frægasta hveri í heimi sem enginn hefur látið sér detta í hug áður. Árangurinn gefur að líta í finnsku heimildarmyndinni Underwater lceland, ásamt fjölmörgum öðr- um myndskeiðum sem tekin eru undir yfirborði frægra vatnsfalla landsins. Meðal staða sem finnsku kvikmyndagerðarmennirnir stungu sér ofan í voru Jökulsárlón við Breiðamerkurjökul, Almannagjá og Gullfoss. Einnig gerðu þeir sér ferð til ísafjarðar að mynda neðra byrði ísjaka sem þar var á floti og köfuðu ofan í plötumótin sem skilja að Evrópu og Ameríku. Myndin er ekki hefðbundin náttúrulífsmynd heldur má frekar lýsa henni sem Ijóð- rænum óði til náttúru íslands undir vatnsyfirborðinu. Framleiðendur myndarinnar segja hana lýsa sögu kafara sem leitar uppruna lífsins og því hafi ísland, eitt yngsta land heims, orðið fyrir valinu. Leikstjóri myndarinnar er Marko Röhr. Underwater lceland verður frumsýnd í Stjörnubíói um miðjan júlí. Frá aldamótum til nútímans Innsýn í listasögu landsins á Kjarvalsstöðum Á Kjarvalsstöðum er í sumar hægt að skoða á einni sýningu, sem nefnist Is- lensk myndlist, verk fjölda ólíkra lista- manna, allt frá Ásgrími Jónssyni til Sigurðar Guðmundssonar. Þetta eru verk sem eru í eigu Listasafns Reykja- víkur, olíumálverk, innsetningar, textíl- og keramíkverk. Markmið sýningar- innar er að gefa gestum safnsins innsýn í listasögu landsins frá þessari öld. I vestursalnum eru sýnd landslags- málverk eftir frumherja í íslenskri myndlist á borð við Þórarinn B. Þórar- insson, Ásgrím Jónsson, Kjarval og Málverk eftir Louisu Matthíasdóttur, Gul, 1990. fleiri. Þar er einnig að finna abstrakt- verk eftir málara sem komu fram á sjónarsviðið um miðja öldina, til dæm- is Svavar Guðnason, Nínu Tryggva- dóttur og Þorvald Skúlason. I miðrýminu hanga uppi verk Errós og m.a. verk Súmmarana Sigurðar Guðmundssonar og Hreins Friðfinns- sonar. I austursalnum eru svo verk eftir listamenn dagsins í dag, svo sem Sig- urð Áma Sigurðsson, Huldu Hákonar- dóttur og Georg Guðna. Sýningin Islensk myndlist stendur til 31. ágúst. BÍÓ The Lost World Sex ár eru liðin síðan æv- intýrið um Júragarðinn hlaut skelfilegan endi. Það er orðrómur á kreiki um að eitthvað hafi lifað af... Svona er framhaldsmynd Jurassic Park kynnt af framleiðendum. Dr. lan Holm, leikinn af Jeff Goldblum, er aftur kominn á fornar slóðir til að rannsaka hvort orðrómur- inn hafi við rök að styðjast, en hann er eina persónan úr fyrri myndinni sem kemur nú við sögu, fyrir utan risaeðlurnar auðvitað. Það er ótrúlegt en satt að Steven Spielberg, sem reyndar vill ekki kalla þetta framhald, hefur búið til mynd sem tekur þeirri fyrri fram í hamagangi og tæknibrellum. Men in Black Vísindatryllir með gaman- sömu ívafi sem gerist í óskilgreindri framtíð. Tommy Lee Jones og Will Smith leika fulltrúa stofnunar sem heítir Men in Black og er nokkurs konar útlendingaeftirlit fyrir gervalla jörðina. Geimverur eru þeirra fag og einn daginn uppgötva þeir samsæri gegn Jörð- inni í fjarlægu sólkerfi og þurfa að hafa hraðar hendur til þess að forða ragnarökum. The Rfth Element Franski leikstjórinn Luc Besson (Nikita, Subway, The Big Blue) er ekki beinlínis þekktur fyrir að gera djúpar bíó- myndir. Útlit myndanna er hins vegar alltaf í góðu lagi. Sjaldan hefur þetta átt betur við en um nýjustu mynd hans sem gerist í kring- um árið 2300 og skartar Bruce Willis í hlut- verki leigubílstjóra sem þarf fyrirvaralaust að takast á við hetjuhiutverkið. Sagan er fremur gloppótt, en það skiptir engu máli, því að sjónarspilið sem Besson setur á svið er sannkölluð veisla fyrir augað. Con Air Dæmigerð sumarhasarmynd sem er ekkert að höfða of mikið til vitsmuna á- horfenda. Nicholas Cage leikur fanga sem hefur verið náðaður og er á leíð í faðm fjöl- skyldu sinnar en lendir í rangri fangaflutn- ingavél. Þar um borð eru nokkrir hættuleg- ustu glæpamenn Bandaríkjanna og þeir ræna vélinni. John Malkovich er sérlega illi- legur sem foringi glæpagengisins. John Cusac leikur lögregluforingja sem á jörðu niðri reynir að afstýra flótta glæpamannanna og finnur óvæntan bandamann í Cage. 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.