Ský - 01.06.1997, Blaðsíða 66

Ský - 01.06.1997, Blaðsíða 66
Milli himins og jarðar - segir Elsa B. Valsdóttir, formaður Heimdallar sem útskrifast úr læknisfræði nú í vor. Félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, Heimdallur, er 70 ára um þessar mundir. í forsvari þar er Elsa B. Valsdóttir og hefur hún ásamt félögum sínum staðið fyrir margskonar uppákomum í tilefni afmælisins. Elsa útskrifast úr læknisfræði frá Háskóla íslands nú í vor. Miðað við ramakvein nemenda í faginu um erfiði námsins hlýtur sú spuming að vakna hvort það hafi ekki verið snúið að sinna bæði formennsku í Heimdalli og náminu? „Þó að læknisfræðin sé mjög erfið og tímafrek, þá finnst mér ekki nóg að sinna henni eingöngu. Heimur læknisfræð- innar er einsleitur og lokaður. Mér hefur alltaf fundist bráð- nauðsynlegt að umgangast fólk með önnur áhugamál og gera eitthvað allt annað en að læra inn á milli.“ En skyldi ekki vera erfitt að halda úti starfsemi Heimdallar og virkja fólk nú á okkar hugsjónalausu tímum? „Við erum með okkar eigin blaðaútgáfu og gerum okkar besta til að halda uppi málefnalegri umræðu um hin og þessi mál á hugmyndafræðilegum grunni. Mér finnst það ganga ágætlega innan félagsins, en það er erfiðara út á við. Það er erfitt að útskýra hugmyndafræðilega baráttu í örfáum orðum í fjölmiðlum," segir Elsa og bætir því við að fjölmiðlar hafi miklu meiri áhuga á ímynduðum skoðanaágreiningi innan fé- lagsins og flokksins en umræðu um hugmyndafræði, en ekki sé hægt að setja samasemmerki milli vilja fjölmiðla og hins almenna borgara. „Þeir sem á annað borð velta stjórnmálum fyrir sér gera það á hugmyndafræðilegum grunni frekar en eftir flokkalínum. Ungt fólk nú til dags hefur hugsjónir alveg eins og áður,“ segir hún. Blikur eru á lofti í íslenskum stjómmálum, sameining vinstri manna gæti verið á næsta leiti þó ekki séu enn sjá- anleg nein greinileg teikn um það. Elsa segir línur milli litlu flokkanna ekki vera skýrar, en Sjálfstæðisflokkurinn skeri sig eindregið úr öðrum stjórnmálaflokkum. Því hef- ur löngum verið haldið fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé einmitt aðeins samkrull margra stefna - margir litlir flokkar í einum. „Ég hef oft sagt að mesti styrkur en jafnframt mesti veikleiki flokksins sé stærð hans, því að oft þarf að finna málamiðlanir sem allir geta verið sáttir við. Það er þó ekki hægt að nefna neinn annan stjómmálaflokk á íslandi sem vinnur út frá ákveðinni gmnnstefnu, sama í hvaða mála- flokki er, þó sú stefna komi misjafnlega skýrt fram. Grundvallarstefnan er frelsi einstaklingsins og á því byggjum við.“ Sjálfstæðisflokknum, sem hefur verið legið á hálsi að eiga fáa kvenfulltrúa og hampa þeim lítið, gæti hug- kvæmst að hafa Elsu ofarlega á lista í næstu kosningum. Hvemig líst henni á það? „Námið mun mjög líklega leiða mig til útlanda á næstu árum, en meðan áhuginn og tíminn em fyrir hendi er mér það heiður að fá að starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn." 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.