Ský - 01.06.1997, Blaðsíða 20
95
Undanfarin átta ár hefur Ragnar Axelsson Ijósmyndari
ferðast til Grænlands og tekið myndir af landi og þjóð. Enda
þótt aðstæður til myndatöku séu erfiðar á Grænlandi vegna
vondra veðra og gífurlegs kulda segist hann ekki vera nein
hetja, heldur bara hafa heillast af landi og þjóð. „Það sem ég
er að gera er lítið mál, strákarnir sem gengu á Everest, það
eru hetjur,“ segir Ragnar. Huldar Breiðfjörð spjallaði við hann
um Grænlandsáhugann og Ijósmyndaralífið.
Heyrðu það er allt á hvolfi hjá
mér í dag, geturðu hringt í
mig á morgun?" sagði Ragn-
ar þegar ég hringdi í Itann
fyrst og falaðist eftir viðtali. ..Ókei."
svaraði ég. ..Heyrðu það er allt brjálað
í dag aftur, má ég hringja í þig á morg-
un?" sagði Ragnar þegar ég hringdi i
hann daginn eftir. ..Ókei." Og daginn
eftir. þegar ég var búinn að gefast upp
á því að bíða et'tir að Ragnar myndi
hringja. tók ég upp símtólið. ..Æ. fyrir-
gefðu, ég gleymdi mér. það er allt
brjálað í dag aftur. ég þarf að fljúga
yfir einhverja Slysavarnarfélagsbáta
sem eru að koma inn. svo eru tveir
fundir niðri í bæ og svo þarf ég að
framkalla." ..Ókei." ..En heyrðu, ég
finn tíma. má ég hringja í þig seinna í
dag?" „Ókei." Hanti hringdi svo
seinna um daginn.
Ókei.
Grænland
Þegar við svo loksins hittumst skildi
ég af hverju hann kallar sig RAX. Það
er ekki bara flott stytting á nafninu
hans, heldur er hann einhvern veginn
þannig. RAX! Útitekinn og brosmild-
ur, hress og stressaður. Orkubolti á
stöðugum þönum. Hann er RAX.
Þegar við höfðum komið okkur fyr-
ir á skrifstofunni hans bauð hann mér
upp á kók og áður en ég náði að hefja
viðtalið þaut hann tít aftur. RAAAX...!
En kom STRA.X! aftur með aðra kók
handa sér. settist í stólinn og dró djúpt
andann. Eg notaði tækifærið og spurði:
18