Ský - 01.06.1997, Blaðsíða 37
Drottningar
Andrúmsloftið í hópnum var sérstaklega vinalegt. Sigríður Kjartansdóttir tekur mynd af Eddu Hilmarsdóttur. Harpa Lind Harðardóttir (til
vinstri), sem valin var Fegurðardrottning íslands, og Guðrún Hildur Jónsdóttir fylgjast með.
Það þurfti ekki síður að taka til hendinni
í eldhúsinu en í búningsherbergjunum.
Baksviðs. Að baki glæsileik-
ans, fyrir framan miskunnar-
lausa speglana. Tómar Asti
Gancia-freyðivínsflöskur hér
og þar, einn, tveir tappar við hliðina á
kinnalitnum, glossinu og púðrinu.
Heillaóskablómvendir, kampavínsglös
með varalitskossum, gervineglur,
vaselín og nuddolía, augnblýantur og
herðatré breyta búningsherberginu í
lifandi málverk eftir Picasso. Stelpur á
skrafi. Þetta er kvennaheimur.
„Ég bjóst við að þetta yrði meira
stressandi en það er. Þetta er bara mjög
skemmtilegt. Maður segir bara við
sjálfan sig: „Ég er falleg!“ Og það fær
mann til að brosa, svo hrósum við
stöðugt hver annarri og það eykur
sjálfstraustið. Það er líka gott að kynn-
ast nýju fólki og eignast nýja vini,“
segir Dúna Rut Karlsdóttir frá Flúðum,
ein fegurðardrottninganna tuttugu.
„Þessar stelpur eru allar sérstakar.
Hver og ein á skilið að hljóta titil.
Andrúmsloftið er sérstaklega afslapp-
að,“ segir kynnir kvöldsins, Bjarni
Olafur Guðmundsson.
Farðaðar konur, kitlandi krullur,
loftið titrar af hárlakksangan og ilm-
vatnslykt. Gull og silfur fanga ljósið,
leiftra á hunangslitaðri húð. Geislandi
bros, perluhvítar tennur, augu eins og
tærustu lækir, grænir eða bláir.
Skipt um föt. Tælandi svört bikini-
baðfötin reyna á sjálfstraustið. Tauga-
óstyrkir englar stíga inn í sviðsljósið.
Popp. Korktappi svífur eins og loft-
steinn á himinhvolfinu, freyðandi foss,
svo er skellt upp úr og andvarpað af létti.
„Ég er ánægð með að baðfatahlut-
35