Ský - 01.06.1997, Síða 11

Ský - 01.06.1997, Síða 11
Liggur í loftinu - eða aðdragandinn að fjórum mínútum og þrjátíu og einni sekúndu á jslandi í dag“ eftir Þorstein Joð Fréttafundur, Stöð 2, kl. 09.40. Splunkunýr dagur. Það er ákveðið að fljúga með fulltrúum Slysavarnarfé- lagsins austur á Skeiðarársand til að ná myndum af slysagildrum sem ferða- menn sumarins verða að vara sig á. Reykjavíkurflugvöllur, kl. 10.53. Eg og Dúi myndatökumaður bíðum flugs austur á Sand. í auglýsingu á vegg Leiguflugsins eru flugmenn beðnir að fljúga ekki of nálægt loð- dýrabúum á Vatnsleysuströnd og á Suðurlandi vegna þess að fengitíminn standi yfir og dýrin séu viðkvæm fyrir hávaða. Partinavia-flugvél, tveggja hreyfla, kl. 11.22. Við erum líka viðkvæmir fyrir há- vaða og öskrin úr hreyflunum útiloka samræður. Farangurinn okkar er stóra myndavélin, tvær linsur, tveir hljóð- nemar og fimm tómar spólur. Við fljúgum gegnum grá ský í ellefu þús- und feta hæð, hátt yfir loðdýrabúum Islands, í átt til flugvallarins í Freys- nesi. Við ætlum að mynda sandgýgj- umar og skriðjökulinn í gjánni inn af stóra farvegi og taka fáein viðtöl. Mitshubishi L 300, kl. 13.04. Slysavarnarfélagsmaður við stýrið. Við erum á vegaslóða við stóra farveg, og það er megn ilmvatnslykt í loftinu af stelpunni í rauða sundbolnum á spjaldinu sem hangir á baksýnisspegl- inum. Skeiðarársandur, kl. 14.23. Sigurður Bjamason, bóndi á Hofs- nesi í Öræfum, er einn þeirra sem veit allt um þetta splunkunýja landslag sem myndaðist í hlaupinu mikla úr Gríms- vötnum í vetur sem leið. „Gengur,“ segir Dúi, og rauða ljós- ið efst á myndavélinni logar: Hérna Sigurður, þetta er að verða einn vinsœlasti ferðamannastaðurinn á Islandi í dag. „Já, ég býst við því. Það er að verða mjög margmennt hérna, líkt og á Laugaveginum í Reykjavík.“ Okkur sem göngum Laugaveginn finnst nú ekki eins og hér á sandinum séu miklar hœttur. „Nei, það má kannski segja það. En þetta er samt svipað og á Laugavegin- um, þar er einn og einn sem lendir fyr- ir bíl og héma geta menn lent í ýmsu, sjáðu til, sandgýgju - eða orðið undir klakabrotum úr ísstálinu." Mitshubishi L 300, kl. 14.53. Við ökum á um 90 kílómetra hraða eftir bráðabirgðaþjóðveginum, í átt að flugvellinum í Freysnesi. Það eru rúm- lega fjórir tímar þar til efnið þarf að vera tilbúið og það kemur alltaf þessi netti fiðringur í hjartað þegar ég hugsa til þess hvort okkur takist að setja þetta saman áður en klukkan slær 19.20. Mér kemur í hug þegar við keyrðum í loftinu eftir þjóðveginum á Suðurlandi með sýnishorn af hlaupinu úr Gríms- vötnum í hvítri fötu. Ég kom í útsend- inguna í útigallanum, og skálaði í gráu jökulvatninu við Jón Ársæl og Ara Trausta Guðmundsson jarðfræðing. Skrýtinn hlutur, þetta tekst alltaf, þótt oft megi engu muna. Reykjavíkurflugvöllur, kl. 16.25. Ég hringi í útsendingarstjórann á Stöðinni til að segja honum að við séum lentir og efnið verði trúlega um fjórar til fimm mínútur að lengd. Ekki lengra en fjórar og þrjátíu, svarar hann. Ég lofa því, segi ég. Tíminn er alltaf að hlaupa frá okkur í sjónvarpinu. Klippisett 1, Stöð 2, kl. 17.10. Við setjumst framan við betutækin tvö, tökum upp spólumar og byrjum svo að raða efninu saman, samkvæmt kenningum Aristótelesar um uppbygg- ingu, upphaf, miðju og endi. Sigurður bóndi í Öræfum er einkar fallegur að sjá í þessu framandi landslagi. Klippisett 1, Stöð 2, kl. 18.47. Dúi lýkur við að setja síðustu myndina yfir viðtölin. Efnið „Skeiðar- ársandur í dag“ er tilbúið, fjórar mínút- ur og þrjátíu og ein sekúnda af vett- vangi. Ég fæ mér svart kaffi og sest í stólinn í förðunarherberginu. Lyktin af stelpunni í rauða sundbolnum er enn þá í fötunum mínum. Stúdíó, Stöð 2, kl. 19.03. Komiði sœl. I kvöld skoðum við slysagildrur á einum vinsælasta ferða- mannastaðnum á Islandi í dag, Skeið- arársandi... 9

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.