Ský - 01.06.1997, Page 24

Ský - 01.06.1997, Page 24
Rax reyna að fara hratt yfir til að ná þessari stemmningu áður en hún hverfur bak við gervihnattadiska. Hermaður og málari til skiptis Hvað er það sem rekur þig áfram þegar þú ert að mynda fyrir sjálfan þig? Eg hef mest beint vélinni að ýmsum þáttum í menningu Islands, Færeyja og Grænlands sem eru hægt og sígandi að deyja út. Myndir frá hvalaveiðum og gömlu byggðunum í Færeyjum, bændalífinu og einbúunum á Islandi og svo grænlensku menningunni sem ég hef verið að lýsa. Einn daginn verð- mynduninni. Það er ekki þessi erill sem henni fylgir og stundum er svo gott að komast frá, þó ég myndi ekki vilja skipta á því starfi fyrir nokkuð annað. Þrátt fyrir stressið á flökkulífið vel við mig og þessi spenningur sem fylgir því að vita aldrei hvemig dagur- inn verður. I fréttaljósmynduninni er maður dálítið eins og hermaður sem er sendur út á vígvöllinn. Svarthvítt einfaldlega flottara Hefur þig aldrei langað að reyna fyrirþér sem Ijósmyndari erlendis? Það munaði mjög litlu fyrir nokkrum árum að ég flytti út. En ég því maður þarf að vinna myndina sjálfur alla leið. Eitt að lokum, hvaða svœði ráð- leggurðu lesendum að skoða ef þeir ákveða að fara til Grœnlands einn daginn? Það er flott að sjá ísinn brotna fram í Ilulissat (Jakobshavn). Þar em risaís- jakar og þetta stórbrotna grænlenska íslandslag. Ammasalik er líka flott svæði, en einhvers staðar þar fyrir norðan á að búa þjóðflokkur sem aldrei hefur fundist. Fólk á að hafa séð glitta í hann, en enginn hefur náð að finna hann ennþá. Sumir segja reyndar að þetta sé ekki satt, en gamla fólkið Langt úti á ísnum, fyrir norðan nyrstu byggðir í heimi, Qaanaaq og Siorapaluk. ur þetta ekki til, en þá verða myndimar mínar ákveðin heimild um þessa menningu. Þetta er verkefni sem í rauninni tekur aldrei enda. Mig vantar til dæmis mynd af ísbjarnaveiðum á Grænlandi, eins og ég hef áður sagt, og grindhvalaveiðum í Færeyjum. Þetta er vœntanlega aðeins öðru- vísi en að vinna við fréttaljósmyndun. Fœrðu meira út úr þessu? , Þetta er allt öðruvísi. Ég ræð mér auðvitað algjörlega sjálfur, er svona eins og málari sem fer út í hraun og málar bara það sem honum finnst áhugaverðast og flottast. En fyrst og fremst er þetta góð hvfld frá fréttaljós- býst við að ég sé bara svona heimakær og hér á ég mína fjölskyldu og vini. En auðvitað væri gaman að fara meira út og vinna stórar greinar fyrir erlend blöð. Ég hef reyndar aðeins prófað það, vann til dæmis verkefni á Spáni fyrir La Guardia, seldi myndaseríu í LIFE á sínum tíma og hef selt eina og eina mynd í hin og þessi blöð. En ég held bara að það sé ekki þess virði til lengdar að búa og vinna úti. Af hverju myndarðu svona mikið í svarthvítu? Mér finnst svarthvítt einfaldlega flottara og miklu meiri ljósmyndun. Það reynir líka meira á ljósmyndarann heldur þessu fast fram. Og fyrir nokkrum árum vaknaði finnsk kona sem var stödd í Ammasalik við það að tveir skinnklæddir menn stóðu yfir henni. Þeir forðuðu sér þegar hún vaknaði, en þegar hún fór að spyrjast fyrir um þessa menn kannaðist enginn við þá. Eins er Umanak mjög fallegt svæði og fleiri og fleiri staðir. Landið er svo magnað, öll þessi kyrrð og þessi ískuldi, og þetta dularfulla eitthvað sem ekki er hægt að útskýra fyrir fólki sem ekki hefur komið þangað. Huldar Breiðfjörð er lausapenni í Reykjavík. Hann hefur aldrei komið norðar en á Blönduós. 22

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.