Ský - 01.06.1997, Side 49

Ský - 01.06.1997, Side 49
Útivist Það er að einu og öðru að hyggja áður en lagt er upp í gönguferð sem á að taka meira en einn dag. Anna Dóra Hermannsdóttir, landvörður í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum, gefur hér Viggó Erni Jónssyni nokkur góð ráð. Sá sem ætlar að ganga á fjöll verður að vera í sómasam- legri þjálfun. Það þýðir ekkert að ætla sér að standa beint upp úr skrifborðsstóln- um eftir margra mánaða setu, draga inn bumbuna og vaða upp á fjöll. Það verður lítið gaman að ferðinni ef bak- pokinn og brekkurnar sliga fjallagarpana löngu áður en komið er á áfangastað. Nauðsyn- legt er að vera búinn að venja sig á heilbrigt líf- emi, borða hollan mat og drekka mikið af vatni, áður Við öllu búin: Þriggja laga samsetning; þunnur bolur úr ull eða flísefni, flísstakkur og yst jakki úr regn- heldu efni sem hleypir raka út. en lagt er af stað í göngu sem áætlað er að taki nokkra daga. Það er mjög mik- ilvægt að líkaminn sé tilbúinn í slag- inn. Gallabuxur bannaðar Klæðnaður er að sjálfsögðu í samræmi við veðurfar. Góð föt kosta vissulega skildinginn, en það er betra að borga aðeins meira en minna og fá í staðinn vandaðri vöm en ella. Ef ætlunin er að fara í tveggja eða þriggja daga göngu- ferð verður fólk hreinlega að vera skikkanlega útbúið. Fyrir tveggja daga göngu er mælt með regnfötum, flís- buxum og flíspeysu. Flísefnið er þægi- legt í göngu, það er hlýtt, en svo er það líka þunnt og þægilegt og þornar mjög fljótt ef það blotnar. Til er fjölbreytt úrval af fatnaði úr þessu á- gæta efni. Má þar nefna eymaskjól, lambhúshettur, sokka og hvað- eina. Bráðnauð- synlegt er að hafa eitthvað á höfðinu enda langmest hitaút- gufun þar. Fyrir þá sem ekki vilja nota húfu má benda á eyrna- skjól eða lambhúshettu. Ullar- nærfötin eru algjört skilyrði og það eru aukapör af sokkum og vettlingum líka, jafnvel í glampandi sól og blíðu. Gallabuxur eru alveg bannaðar. Þær eru kaldar, fljótar að blotna og mjög lengi að þoma. Vindþéttur og vatnsheldur gor- etex-stakkur er síðan tilvalinn sem ut- anyfirflík. Regnföt eru líka nauðsyn- leg, enda erum við á íslandi. Því færri saumar því betra Gönguskór á markaðnum eru af ýms- um gerðum og sérstaklega hannaðir með tilliti til landslags. Því meira klif- ur sem ætlunin er að fara út í, þeim mun stífari eru skórnir. Með stífari Jöklaskór með stífri skel, ætlaðir við erfiðustu skilyrði. Miðlungsstífir skór, upplagðir fyrir langar gönguleiðir um ekki mjög torfærar slóðir. Léttir en þó sterkir gönguskór, henta vel í ferðir um troðnar leiðir. 47

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.