Ský - 01.02.1998, Page 10
In and Out
William Brackett (Kevin Kline) er leiklistar-
kennari í smábænum Greenleaf í Indiana.
Cameron Drake (Matt Dillon) er ung stór-
stjarna í Hollywood sem hlýtur Óskarsverð-
laun fyrir leik sinn í mynd um samkyn-
hneígða menn í hernum. í þakkarræðu sinni
tileinkar hann Brackett Óskarsverðlaunin og
bætir því við að hann sé samkynhneigður.
Þetta setur allt á annan endann í smábæn-
um, ekki síst vegna þess að Brackett er í
þann mund að ganga ( það heilaga. Hug-
myndin að þessari mynd varð til er Tom
Hanks tileinkaði leiklistarkennara sínum
Óskarsverðlaunin sem hann hlaut er hann
fór með hlutverk samkynhneigðs manns í
Philadelphia.
Kýlir mann
áfram
Hildur Óttarsdóttir debuterar með íslenska dansflokknum
Fyrsta sýningin á 25. afmælisári ís-
lenska dansflokksins eru þrjú
samtvinnuð verk, tvö eftir Ed
Wubbe og eitt eftir Richard Wherlock.
Báðir þessir danshöfundar eru risar í
balletheiminum og nöfn þeirra þekkt.
Nafn Hildar Óttarsdóttur er minna
þekkt. Fyrir þremur árum, þegar hún
var sautján ára, fór hún út í sænska
balletskólann. Síðastliðið vor lauk hún
náminu og er nú komin og debuterar
með íslenska dansflokknum í sýning-
unni.
Hvernig var að koma heim?
„Ég var orðin dálítið þreytt á að vera
úti og langaði að koma heim. Þannig
að það var fínt að koma aftur, en auð-
vitað þurfti ég að skilja við alla vinina
og maður hefur taugar út líka.“
En þú hefur frekar viljað koma heim
en reyna fyrir þér úti?
„Maður getur alltaf farið út aftur.
Það er fínt að fá smáreynslu hérna
heima og fara svo út þar sem sam-
keppnin er miklu harðari og þó að
maður fái stöðu einhvers staðar er
ekkert víst að maður fái að taka þátt.“
Undirbýr balletdansari sig eins og
leikari fyrir hlutverk?
„Það fer mjög mikið eftir hlutverk-
inu. í hlutverkunum í þessum verkum
er ekki söguþráður i gegn og ég er ekki
í hlutverki einhvers ákveðins karakters.
En það er auðvitað æft stíft eins og í
leikhúsinu. Katrín Hall stýrir þessu öllu
ásamt aðstoðarmönnum höfundanna
og svo koma höfundarnir sjálfir og
verða með okkur vikuna fyrir frumsýn-
inguna."
Og hvernig leggst það í þig að stíga á
svið með íslenska dansflokknum?
„Það leggst mjög vel í mig, verkin
eru mjög góð og spennandi að taka
þátt í þeim. Auðvitað er ég dálítið
stressuð en það kýlir mann áfram.“
En hvernig líst þér á það sem er að
gerast i dansinum hér heima?
„Mjög vel. Það er ótrúlega mikið
búið að gerast og stefna íslenska
dansflokksins er mjög góð. Hann er
kominn meira inn í nútímadans og öll
þróun er í nútímadansi. Úti byrjaði ég í
klassíkinni en skipti fljótlega yfir á nú-
tímadansbraut því þeim megin er allt
að gerast."
Hefur landinn skilning á þessu list-
formi?
„Þeir voru dálítið tregir til fyrst. En
Katrín er búin að gera góða hluti og ís-
lendingar eru að taka við sér.“
En er ekkert erfitt að hafa ofan af fyrir
sér sem balletdansari?
„Rétt eins og í öllum listum, þá
reddast þetta."
Kiss the Girls
er gerð eftir samnefndri
metsölubók James Patter-
son. Fjallar um æsilegt
kapphlaup lögreglumanns-
ins og réttarsálfræðingsins
Alex Cross, leikinn af
Morgan Freeman, við að
finna frænku sína sem hef-
ur verið rænt. Cross er
utan sinnar lögsögu og er
ekki vel tekið af yfirvöldum
North Carolina sem er vettvangur sögunnar.
En Cross getur ekki látið það á sig fá þar
sem sjö stúlkur eru horfnar og tvær af þeim
hafa þegar fundist látnar. Leikstjóri er Gary
Fleder, en hann er best þekktur fyrir hina
óvenjulegu mynd: Things to do in Denver
when you are dead.
Flubber
Það er stórleikarinn Robin Williams sem fer
með aðalhlutverkið í Flubber, en myndin er
gerð af John Hughes, framleiðanda og leik-
stjóra Home Alone-myndanna. Hér er á
ferðinni endurgerð á The Absent Minded
Professor frá árinu 1961 og fjallar myndin
um hrakfarir vísindamannsins Phillip
Brainard. í tvígang hefur hann gleymt að
mæta í eigið brúðkaup og hefur kærasta
hans gefið honum EINN SÉNS ENN til að
giftast sér. Á þessum mikilvægasta degi ævi
sinnar tekst Brainard síðan að uppgötva
slímið Flubber og missir síðan af eigin brúð-
kaupi - enn einu sinni.
Seven Years in libet
Árið 1939 fór austurískur fjallgöngumaður
að nafni Heinrich Harrer og félagi hans,
Peter Aufschnaiter, til Himalayafjalla að klffa
fjallið Nanga Parbat. Eftir að hafa glímt við
fjallið var Heinrich fangaður af Bretum og
settur í fangabúðir. Þaðan tókst honum að
flýja ásamt Peter og voru þeir félagar tvö ár
að brjótast yfir Himalayafjöllin til Tíbet, nær
dauða en lífi. Þar hitta þeir trúarleiðtoga
landsins, ungan dreng að nafni Dalai Lama.
Brad Pitt fer með hlutverk Heinrich Harrer í
þessari mögnuðu mynd.
8