Ský - 01.02.1998, Qupperneq 19

Ský - 01.02.1998, Qupperneq 19
Lolla hvor af öðrum og séu þá til ama á leikæfingum. Verður þá löng þögn hjá Ólafíu Hrönn og ekki laust við að hún verði skömmustuleg á svipinn. „Jú ... jú ... einu sinni lék ég á móti leikara og var svo skotin í honum að ég gat ekki leikið á móti honum. Ég var bara nýbyrjuð að leika, var ægilega hrifnæm og taldi mig vera yfir mig ást- fangna af manninum. Ég hafði áður leikið á móti honum þegar ég var yngri og fannst hann æðislega sjarmerandi. Ég komst svo yfir þetta meðan á æf- ingunum stóð, en þama sýndi ég ekki fagmannlega takta.“ Talið berst að leikurum og segist Ólafía Hrönn eiga einn uppáhaldsleik- ara að öllum öðrum ólöstuðum. „Mér þykir rosalega vænt um hana Dóru. (Halldóru Geirharðsdóttur). Hún er svo ekta, alvöru og falleg manneskja. Svo er hún svo mikill pæl- ari, gerir skemmtilegar tilraunir á sjálfri sér og það er alltaf svo mikið í gangi hjá henni. Mér þykir vænt um hana.“ Ólafía Hrönn segir það mjög mis- munandi hvort leikarar haldi mikið hópinn og séu í vinskap í frítímum sín- um. Hún hafi til að mynda aldrei verið mikið með vinnufélögunum í sínum frítíma. „Bára Lyngdal leikkona var mín vinkona í leikhúsinu, en hún er nú flutt út til Svíþjóðar. Upp á síðkastið hef ég helst umgengist Helgu Brögu, en það rugla okkur alveg ótrúlega margir saman og við erum orðnar verulega þreyttar á því. Það er endalaust verið að þakka mér fyrir það sem hún hefur gert og svo öfugt. Við erum að spá í að splæsa í flettiskiltaauglýsingu til þess að leiðrétta þennan sífellda mis- skilning. Jón Gnarr stakk upp á þessu úrræði og mér finnst það hugmynd sem er vert að skoða því meira að segja þegar við erum að leika í sömu sýningunni heldur fólk að það sé trix og önnur leiki bæði hlutverkin.“ Karlmennirnir þora ekki Er ónæði af því að vera frægur og sí- fellt stoppaður á ferðum sínum um stræti borgarinnar? „Ég veit ekki hvort maður á að kalla það ónæði því fólk er mjög gott við mig. Svo er ekki sama hvemig fólk tjáir sig. En mér þykir mjög vænt um það sem sumir segja og er mjög sátt við það þegar fólk kemur að máli við mig og þakkar mér fyrir eitthvað. Því í raun er fólkið að tjá manni ást sína.“ Ólafía Hrönn segist ekki líta á sig sem fræga manneskju. Hún sé bara Lolla sveitapía að austan. Þó sé gaman að frægðinni þegar hún geri vart við sig og sýni sig í þakklæti og hrifningu fólksins. En á móti sé ókostur frægðar- innar sá að geta ekki horfið í fjöldann. Kjaftasögur eru hluti af frægðinni og Ólafía Hrönn telur öruggt að eitt- hvað sé skrafað um hana og ábyggi- lega nóg tilefni til umtals. En hún heyrir ekki kjaftasögurnar og segist vera alveg sama um slíkan óhróður svo framarlega sem fólk fari ekki að líta á hana með ógeði og fyrirlitningu. „Annars reyni ég að lifa samkvæmt þeirri sannfæringu minni að heiðar- leikinn sé fremstur dyggða. Að fólk eigi að leitast við að vera heiðarlegt, bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum. Að viðurkenna hugsanleg mistök sín og segja meiningu sína geri hún gagn, jafnvel þótt hún særi, en aðeins ef hún gerir gagn. Ég þoli ekki yfirborðs- kennd, þegar fólk virðist ekki ná í sjálfið sitt og er í einhverjum tilgangs- lausum leik. Það fer eiginlega of mikið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.