Ský - 01.02.1998, Blaðsíða 34

Ský - 01.02.1998, Blaðsíða 34
Björgunarsveitir hópinn því færari. Þar eru einnig at- vinnumenn í ferðamennsku sem hafa það að lifibrauði að leiðbeina mönnum yfir jökla á íslandi og Grænlandi, klífa með þeim hæstu fjöll og kenna ísklifur og jöklasprang. Þetta eru þrautþjálfað- ir harðjaxlar sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Það eru haldnar sérstakar æfingar fyrir undanfarana og hópurinn verður fyrir vikið oft þétt og lokuð klíka sem gerir nýliðum enn erfiðara fyrir um inngöngu. Það er hins vegar ákveðinn styrkur fyrir hópinn, og ekki er neinni miskunn fyrir að fara ef einhver sýnist vera að missa úthaldið eða mæta illa. Þá er mönnum ýtt út úr hópnum og nýr kemur inn í staðinn. Þetta gerist annað- hvort að frumkvæði viðkomandi undan- fara eða þá að hann er einfaldlega beðinn að rýma skápinn sinn. Meðalaldur undan- fara er á bilinu 25 til 30 ár. Einn hinna yngstu mun vera 21 árs nýliði hjá Flug- björgunarsveitinni og þar er einnig að finna elsta starfandi undan- farann. Sá varð fimmtugur í desem- ber síðastliðnum og hélt upp á afmælið sitt á Hvannadals- hnjúk í grimmdarfrosti þegar sólar- gangur er hvað stystur á Islandi. Al- mennt eru menn ekki teknir inn í slíka hópa yngri en 20 ára. í öllum sveitunum tíðkast að menn eru teknir inn í hóp undanfaranna á sömu skilmálum og nýliðar inn í sveit- irnar. Fyrst eru þeir hafðir með til reynslu og ef fyrsta árið gengur vel eru þeir teknir inn sem fullgildir undanfar- ar. Hverjir eru bestir? Það er mjög mikil samkeppni um stöðu í hópi undanfara en samkeppnin milli sveita er einnig mikil. Slíkur ríg- ur er að mestu leyti góðlátleg sam- keppni sem birtist í gælunöfnum eins og „Flubbar“ fyrir Flugbjörgunarsveit- ina eða gamansömum skeytum í gesta- bókum fjallaskála. En rígurinn er líka til í nokkurri alvöru og þegar Flubb- amir týndu hópi nýliða á Landmanna- afrétt fyrir nokkrum árum sögðu gár- ungarnir að þeir hefðu frekar látið þá verða úti en að kalla á skátana til þess að leita. Til þess að koma í veg fyrir að slík- ur rígur spilli því sem er raunverulegur tilgangur alls starfsins eru haldnar sameiginlegar æfingar með hinum fjórum hópum undanfaranna fjórum sinnum á ári. Auk þess eru samræmdar kröfur og markmið sem gerir það að verkum að hópur undanfara úr ólíkum sveitum getur unnið vel saman á vett- vangi. Þetta samstarf þvert á sveitir gerir það að verkum að undanfaramir þekkjast flestir vel annaðhvort úr starf- inu innan sveitarinnar eða úr öðrum félögum, svo sem Islenska alpa- klúbbnum eða áþekkum félögum. Sumir líkja þessum ríg við þann sem er milli fótboltafélaga, það er að hann sé fyrst og fremst á yfirborðinu en hverfi þegar menn þurfi að standa saman þegar út í alvöruna er komið. Halda tryggð við sína sveit Þetta samstarf undanfaranna þvert á sveitarbönd er nýmæli, en annars halda menn yfirleitt ævilangri tryggð við þá björgunarsveit sem þeir starfa í og skipta ekki um sveit eins og fótbolta- menn um félög. Þó flestar sveitirnar sem starfrækja undanfara séu nógu gamlar til þess að komin er upp önnur kynslóð gildir ekki sama tryggðin við sveit milli kynslóða. Þannig eru bræð- umir Hörður og Hallgrímur Magnús- synir Everestfarar báðir í undanfara- hópi Hjálparsveitar skáta í Reykjavík meðan faðir þeirra Magnús Hallgríms- son er ævifélagi og stjórnarmaður í Flugbjörgunarsveitinni. Björn Ólafs- son Everestfari er í sama undanfara- hópi meðan Einar Stefánsson sem einnig fór á Everest er undanfari í Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Innan undanfarahópsins má einnig finna harðjaxla eins og Leif Öm Svavarsson en hann og Einar Torfi Finnsson frændi hans eru atvinnuleiðsögumenn sem hafa meðal annars leiðbeint ferða- mönnum yfir Grænlandsjökul. Þeir eru báðir í Flugbjörgunarsveitinni, en Páll Sveinsson formaður Islenska alpa- klúbbsins er undanfari í Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Af þessari handa- hófstalningu má auðveldlega sjá að meðal undanfaranna er að finna reynd- ustu og harðsvíruðustu ferðamenn og fjallagarpa á íslandi og þó víðar væri leitað. Engarkonur takk Glöggur lesandi sér ef- laust að fram að þessu hefur verið talað um und- anfarana í karlkyni. Til þess liggja ekki einungis málfræðilegar ástæður heldur þær að undanfarar em nær 100 prósent karl- ar. Til skamms tíma voru konur ekki teknar inn í Flugbjörgunarsveitina og það gerðist reyndar ekki fyrr en að undangengnum miklum umræðum og baráttu, en margir eldri félagsmenn börðust hart gegn því. Þetta breyttist loks fyrir fjór- um ámm og nú er ein kona komin svo langt að vera talin nýliði innan undan- farahóps Flugbjörgunarsveitarinnar. Þegar hún verður fullgildur undanfari, sem er talið nær víst, fellur enn eitt vígi karlmennskunnar því hún verður fyrsta konan í þeim hópi. Nokkur dæmi eru úr öðrum sveitum um að konur hafi verið í undafarahópi og frá því að þeim var komið á fót hefur yfir- leitt verið einhver kona í undanfara- hópi Hjálparsveitar skáta í Reykjavík þó nú sé þar engin. Af þessu má ráða að það em vissu- lega til íslenskar sérsveitir. Þeir sem vilja komast í þessar sérsveitir ættu að sækja um í næstu björgunarsveit og hefja æfingar og þjálfun. Öfugt við suma starfsbræður þeirra í útlöndum vinna þeir hetjudáðir sínar í kyrrþey og helga líf sitt þjálfun og aga sem miðar að því að geta bjargað mannslífum þegar á reynir. An endurgjalds. Páll Asgeir Asgeirsson er blaðamaður. Hann kemst ekki í hóp undanfara úr því sem komið er. Björgunarsveitarmenn að störfum á vettvangi snjóflóðsins í Flateyri. Þar voru fyrstir á vettvang undanfarar björgunarsveitanna. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.