Ský - 01.02.1998, Blaðsíða 52

Ský - 01.02.1998, Blaðsíða 52
AKUREYRI FLUGFÉLAGSBÆRINN Þóra Einarsdóttir og Jóna Fanney Svavarsdóttir. Þóra leikur barnfóstruna Maríu í Söngvaseiði, en Jóna Fanney, sem er bróðurdóttir Kristjáns Jóhannssonar, leikur Lísu og er það hennar fyrsta stóra hiutverk á leiksviðinu. 25 ára afmæLi atvinnuleikhúss á Akureyri i haust Þann 6. mars frumsýnir Leikfélag Akureyrar söngleik- inn sígilda Söngvaseið eftir Rodgers og Hammer- stein júníor. Þetta er stærsta uppfærsla Leikfélags- ins á þessu leikári, um tuttugu manns stíga á svið og fjórtán hljóðfæraleikarar taka þátt í sýningunni. Frumsýningin markar einnig tímamót í starfi LA því með henni verða vígðar endurbætur á sal Samkomuhússins sem unnið hefur verið að í tæpt ár. Trausti Ólafsson leik- hússtjóri segir að endurbæturnar séu sérstaklega mikil framför fyrir áhorfendur því sjónlína úr sal hafi verið stórbætt, en einnig verða sett upp ný og betri sæti. Leikfélag Akureyrar hélt á síðasta ári upp á tvenn stóraf- mæli, leikfélagið sjálft varð 80 ára og 90 ár voru liðin frá vígslu Samkomuhússins. í haust fagnar Leikfélagið enn einum áfanganum, en þá er aldarfjórðungur liðinn frá því að það var formlega gert að atvinnuleikhúsi. LA er langstærsta einstaka listastofnunin á Akureyri og leikur stórt hlutverk í bæjarlífinu. Undanfarin leikár hafa tæplega 14.000 gestir komið að meðaltali á sýningar Leikfélagsins og jafngildir það því að næstum hver íbúi hafi komið þar einu sinni inn fyrir dyr. Að sögn Trausta er töluvert um það að utanbæjarfólk geri sér ferð í bæinn til þess að koma í leikhús. „Það má til dæmis nefna að um tíu prósent áhorfenda á Hart í bak nú í haust komu úr Reykjavík sem er mjög gott fyrir haustsýningu því yfirleitt er meiri umferð að sunnan eftir áramót. Þá höfum við líka fundið fyrir miklum straumi vestan yfir Öxnadalsheiði, úr Skagafirði og Húna- vatnssýslu, sem er mjög ánægjulegt," segir Trausti. Söngvaseiður er ekki eina verkið sem LA frumsýnir á næstu mánuðum. Um páskana verður einleikur byggður á Markúsarguðspjalli settur upp á Renniverkstæðinu í leikstjórn Trausta, en það er Aðalsteinn Bergdal sem mun þreyja þá þolraun að leika verkið. Þar sem hjarta listarinnar sLær Það má segja að hjarta listarinnar á Akureyri slái í Grófargilinu í miðbæ bæjarins þar sem áður var mikill iðnrekstur á vegurn KEA. Árið 1991 var stofnað félag sem fékk nafnið Gilfélagið og hefur það í samvinnu við bæjaryfirvöld staðið að uppbyggingu lifandi menningarmiðstöðvar i Grófargilinu og þar eru nú til húsa Listasafnið á Akureyri, Myndlistar- skólinn á Akureyri, Listaskálinn (vinnustofur), fjölnotahúsin Deiglan og Ketilhús, Café Karólína, arkitektastofa, skrifstofa Gilfélagsins, sölu- galleríið Samlagið, Gallerí Svartfugl og gestavinnustofa fyrir listamenn hvaðanæva að. Á þessum slóðum er því örugglega alltaf eitthvað um að vera. Og oft margt í einu, myndlistarsýningar, fyrirlestrar, tónleikar og fleira. Sérstaka athygli má vekja á að djasskvöld eru í Deiglunni flesta fimmtudaga. Gilfélagið hefur umsjón með gestavinnustofunni sem hefur verið mjög vinsæl meðal listamanna. í vetur hefur bandaríski skúlptúristinn David Hebb haldið þar til og unnið að verki sem hann hyggst reisa í Hrísey síðar í sumar. Grófargil „Eg byggi þetta að hluta til á norrænni goðafræði, en það má segja að inntak verksins sé barátta inaðarsam- félagsins við náttúruna," segir David Hebb sem hér sést við módel af verki sínu. 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.