Ský - 01.02.1998, Qupperneq 57
AKUREYRI
■ FLUGFÉLAGSBÆRINN ■
Nágranninn i norðri
Austurströnd GrænLands
Það átta sig sjálfsagt ekki allir á því að samgöngur
við byggðirnar á Ammassalik-svæðinu og
Ittoqqortoormiit á austurströnd Grænlands eru
um margt greiðari frá íslandi heldur en innanlands í
Grænlandi. Það segir þó sjálfsagt meira en mörg orð að
fyrir rúmlega ári var um það samið að Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri tæki við sjúklingum frá þessum byggð-
arlögum í stað þess að þeir yrðu fluttir á spítala á Græn-
landi. Þetta byggist fyrst og fremst á góðum
flugsamgöngum sem Flugfélag Norðurlands á heiðurinn
af að hafa komið á laggirnar og Flugfélag íslands sinnir
núna.
Ferðaskrifstofan Nonni Travel hefur um árabil staðið
fyrir ferðum til austurstrandar Grænlands. Að sögn Hel-
enar Dejak, stjórnanda ferðaskrifstofunnar, eru mannleg
samskipti milli íslendinga og íbúa austurstrandarinnar
vaxandi. Nefnir hún sem dæmi að þann 14. desember
síðastliðinn hafi verið stofnað vinabæjarfélag milli
Ittoqqortoormiit og Dalvíkur.
„Og svo er alltaf að verða meira og meira um það að
Grænlendingar komi í frí hingað til Akureyrar. Þeim finnst
gott að koma hingað og segja að Reykjavík sé allt of
stór fyrir þá,“ segir Helena.
Undanfarin ár hefur verið stöðug aukning í sölu á ferð-
um til Grænlands hjá Nonna Travel, ekki síst yfir vetrar-
mánuðina. Nefnir Helena sem dæmi að nú í janúar hafi
50 ferðamenn farið þangað á vegum ferðaskrifstofunnar.
En það skrítna við þetta er þó það að allt voru það er-
lendir ferðamenn. Það er eins og við íslendingar höfum
ekki enn áttað okkur á þvílíkur undraheimur er hérna
rétt í næsta nágrenni.
Gisting og matur
FjöLmargir vaLkostir
Fiðlarinn er á fimmtu hæð við Skipa-
götu og býður óumdeilanlega upp á
besta útsýni allra veitingahúsa bæjar-
ins. Rússneski ryðkláfurinn sem liggur
við hafnarbakkann við Drottningar-
braut stingur þó í augun og getur
tæplega kallast bæjarprýði.
En heimamenn eru sjálfsagt orðnir
ýmsu vanir eftir að þrír álíka kláfar
frá Rostock lágu þar um tíma í fyrra.
Auk þessara góðu hótela er um
marga aðra gistimöguleika að velja á
Akureyri; önnur hótel, ýmis gisti-
heimili og jafnvel íbúðir og hús. Og
svo er auðvitað tjaldsvæði Akureyrar-
bæjar, sem er mjög miðsvæðis, einn
kostur - en þó varla nema fyrir mestu
hreystimenni á þessum árstíma.
Fiðlarinn á þakinu.
Þegar kemur að gistingu fyrir norðan
hafa ferðamenn úr mörgu að velja.
Flottasta hótelið nú sem fyrr er Hótel
KEA sem er nánast í orðsins fyllstu
merkingu í miðjum miðbænum. Foss-
hótelkeðjan tók við rekstri KEA á síð-
asta ári og heitir hótelið nú Fosshótel
KEA, en keðjan rekur tíu hótel vítt og
breitt um landið. Var þá bryddað upp
á þeirri nýbreytni að
fá vertana á Greifan-
um við Glerárgötu
til þess að sjá um
veitingastaði hótels-
ins. Að öðru leyti er
reksturinn óbreyttur.
Einn besti ráðstefnu-
salur bæjarins er á
KEA. Fosshótel Harpa er annað hótel
sem Fosshótelkeðjan rekur, en það er
við hliðina á KEA og er undir stjórn
sama hótelstjóra.
Hótel Akureyri er vinalegt hótel
sem stendur í brekkunni, rétt við
samkomuhúsið. Hótelið er rekið af
sömu aðilum og hafa veitingahúsið
Fiðlarann á þakinu á sínum snærum.
55