Ský - 01.02.1998, Page 63
I RUMA HALFA OLD
HEFUR PRENTSMIÐJAN ODDI HF
VERIÐ í FARARBRODDI
Á SÍNU SVIÐI.
ÞEKKINGU, REYNSLU OG HÆFNI
HÖFUMVIÐAÐ LEIÐARLJÓSI.
ÞAÐ EROKKAR HAGUR
OG VIÐSKIPTAVINA OKKAR
PRENTSMIÐJAN ODDI HF
Höfðabakka 3-7
112 Reykjavík
Sími 515 5000
Fax 515 5051
Ásta Hrönn Björgvinsdóttir er konan á bak vió World Class Akureyri -Ský kynning
Kjarnorkukona
„Björn hringdi í mig í apríl síðastliðið vor og spurði hvort ég
væri ekki til í að setja upp litla stöð með honum hérna. Ég
þurfti ekki að hugsa mig lengi um og mánuði síðar vorum
við búin að kaupa þetta húsnæði." Það er Ásta Hrönn Björg-
vinsdóttir, framkvæmdastjóri World Class á Akureyri, sem
hefur orðið og er að lýsa aðdragandanum að opnun World
Class fyrir norðan, en sá Björn sem hún talar um er hálfbróðir
hennar, Björn Leifsson, eigandi World Class í Reykjavík.
Stöðin opnaði formlega í október í sérstaklega fallegu húsi
sem stendur í hjarta bæjarins niður við Pollinn.
Að sögn Ástu hafði hún fyrir opnun World Class aldrei
komið nálægt rekstri líkamsræktarstöðvar.
„Ég hafði hins vegar kynnst heilsurækt sem neytandi og
ég var búin að mynda mér mjög ákveðna skoðun á því
hvernig á að gera hlutina og hvernig á ekki að gera þá,"
segir hún.
Ásta og Björn tóku við húsinu tæplega fokheldu og hafa
innréttað það glæsilega. Húsið er mjög opið, en í grófum
dráttum má segja að það skiptist í tvo sali, upphitunarsal og
tækjasal, en búningsaðstaða skilur þá að.
Ásta Hrönn er uppalin á Flateyri og kom til Akureyrar til
þess að fara í skóla og vinna í banka árið 1979. En þar fann
hún líka manninn sem hún átti eftir að giftast og hefur búið
þar síðan. Ásta er ekki kona sem situr með hendur í skauti
sér. Hún vann í Búnaðarbankanum um sjö ára skeið, en hætti
að vinna úti eftir að hún eignaðist seinna barn sitt. Hún sett-
ist svo á skólabekk í VMA árið 1988. Þaðan lauk hún stúd-
entsprófi vorið 1992 og innritaðist um haustið í sjávarútvegs-
fræði í Háskólanum á Akureyri. Ásta tók sér frí frá náminu á
síðasta ári, meðal annars til þess að vinna að opnun World
Class, en tók aftur upp þráðinn um áramótin og stefnir að
því að útskrifast á þessu ári.
Aðspurð hvernig hún fari eiginlega að þessu, auk þess að
reka heimili, segir Ásta að þetta gangi furðu vel upp.
„Námið fer vel saman við rekstur stöðvarinnar. Sjávarút-
vegsfræðin er þverfaglegt nám þar sem eru kenndar bæði
rekstrar- og faggreinar. Það er til dæmis lögð mikil áhersla
á matvælafræði sem passar mjög vel við starf mitt í heilsu-
geiranum," segir hún.
Akureyringar hafa tekið World Class vel og er aðsókn að
stöðinni vaxandi. Ásta segist þó hafa fundið fyrir því að Ak-
Ásta Hrönn Björgvinsdóttir
ureyringar séu hvekktir á utanaðkomandi aðilum sem hafa
skyndilega gefist upp á rekstri fyrir norðan og pakkað sam-
an.
„Það er engin hætta á því með World Class. Við erum kom
in til að vera," segir hún og brosir.