Ský - 01.02.2001, Blaðsíða 21
11.30 Borgarsalan, Ráöhústorgi.
„Þegar ég opna augun á morgnana er mín
fyrsta hugsun aö hendast hingað til að fá
mér bestu pylsur á Akureyri í árbít. Yfirleitt
fæ ég mér fjórar með remúlaði, hráum
lauk og tómatsósu, en einstaka sinnum
tvær. Borði ég þær ekki allar á staðnum
rúllar kaupmaðurinn þeim inn í álpappír
fyrir mig, en ég þyngist að jafnaði um átta
ktló í hvert sinn sem ég er á Islandi.”
13.00 Stjörnusól, Geislagötu 12
„Ég læt mig litlu varða skaðsemi útfjólu-
blárra sólargeisla og finnst reyndar húðin
á mér alltaf t betra jafnvægi þegar hún er
brún. Stundum maka ég þó vörn í andlitið
og nota hlífðargleraugu. Ég hef stundað
Ijósaböð grimmt síðan ég var sautján ára
og nýt þess að fara þrisvar til fjórum
sinnum t viku."
1M.10 Göngugatan Akureyri
„Útlit mitt er mjög dæmigert fyrir Serba.
Ég er með serbneskan kross tattóveraðan
á vinstra herðablaðið og fer alltaf annað
slagið til Serbíu. Um ttma dvöldu nokkrir
fyrrum Júgóslavar hér á Akureyri en tryllt-
ust þegar þeir sáu serbneska krossinn á
öxlinni á mér. Ákváðu þá að þeir hefðu
ekkert við mig að tala. Sárin eftir stríðið
verða lengi að gróa og elta fólkjafnvel
alla leið til íslands.”
14.55 Verslunarklasinn Glerártorg
„Ég er forfallinn DVD-safnari og á safn
með nærri tvö hundruð kvikmyndatitlum.
Oftast kaupi ég eina til tvær kvikmyndir t
hverri heimsókn minni hingað t klasann.
Eg elska Drakúla en safnið geymir margt
fleira en hann. Mér finnst dásamlegt að
dóla mér hérna f búðarápi og kaupi þá
giarnan það sem hugurinn girnist hverju
sinni."
16.00 Kaffihúsið Kaffitorg á Glerártorgi
„Kaffi Akureyri er reyndar eftirlætiskaffi-
húsið mitt þvt að þar má reykja, en mér
finnst líka notalegt að tylla mér hér. Á
kaffihúsum hverf ég á vit dagdrauma
þótt það sé ekki minn sttll að dreyma
óraunhæfar skýjaborgir. Það þýðir nefni-
lega ekkert fyrir mig að láta mig dreyma
um eitthvað sem ég þykist ætla að gera
t framtíðinni vegna þess að ég stend
einfaldlega ekki við það.”
23.30 Venus - erótískur skemmtistaöur, Ráöhústorgi 7
„Mér finnst gaman að dansa, annars hefði ég ekki valið þetta
starf. Skemmtilegast finnst mér að daðra við súluna og ég gef
íslenskum gestum fyrstu einkunn fyrir kurteisi og góða mannasiði.
Margir karlmenn koma hingað til að tala og stundum þarf maður
að beita sálfræði gegn einmanaleika þeirra. Ég þoli ekki kampavín
þrátt fyrir að viðskiptavinirnir kaupi það oftast. Til að móðga engan
hef ég stundum beint athygli þeirra frá mér og að einhverju öðru
til að geta skvett úr kampavínsglasinu í blómapottana.”
17.35 Heima á Akureyri
„Ég er mjög heimakær og eitt af því
skemmtilegasta sem ég geri er að hafa
það notalegt heima og glápa á DVD-myndir
á fimmtíu tommu risaskjá sem ég verslaði
mér fyrir skömmu. Ég hef keypt talsvert
af húsmunum og glingri hérna á Akureyri.
Við búum allar saman, dansmeyjarnar á
Venus, og til þess að mér líði ekki eins
og á stúlknaheimavist hef ég lagt áherslu
á að skapa heimilislegt umhverfi.”