Ský - 01.02.2001, Blaðsíða 104
ÞINGEYSKUR MOLASYKUR
Aldargamall lelkurá Húsavík
Húsvikingar eru miklir ieikhúsunnendur og fóru snemma að skemmta sjálfum sér og öðr-
um með leik og söng. Leikfélag Húsavíkur heldur upp á eitt hundrað ára afmæli sitt á
þessu leikári með gleðileiknum Nitoush sem sópað hefur að sér yfir tvö þúsund áhorf-
endum. í leikfélaginu starfa um hundrað manns með hvíslurum og saumakonum, sem
er dágóð prósenta af jafnlitlu bæjarfélags. Sigurður Hallmarsson, leikstjóri og fyrrverandi
skólastjóri, hefur gefið leikfélaginu fimmtíu og fimm ár af ævi sinni og sér ekki eftir
neinu. „Undir niðri hefur mig trúlega alltaf langað til að veröa leikari og það er í stórum
dráttum ástæðan fýrir því að ég fór að starfa með leikfélaginu," segir Sigurður sem
bæði hefur leikið og leikstýrt hjá einu metnaðarfyllsta leikfélagi landsins. „Við fengum
fimm þúsund áhorfendur á „Fiðlarann á þakinu" 1978-79 sem er tvöfaldur íbúafjöldi
Húsavíkur. Það mun trúlega vera vinsælasta stykki leikfélagsins frá uþphafi." Á döfinni
er að gera andlitslyftingu á Samkomuhúsinu á Húsavík sem nú hýsir leikhúsið og
breikka bilið milli bekkjanna sem þykja kreþpa að fótafúnu fólki. „Nei, mér hefur aldrei
fipast í framsögn á sýningu," segir Sigurður og bætir við skellihlæjandi: „ég myndi alla-
vega ekki taka í mál að trúa því eða viðurkenna." Á fyrsta degi ársins 2001 var Sigurði
veitt hin íslenska fálkaorða fyrir félags- og menningarstarf eða með öðrum orðum fyrir
að skemmta landsmönnum. „Það þótti mér ágæt viðurkenning og virðuleg. Mér þótti
vænt um þetta og varð satt að segja mjög snortinn."
I berjamó á baðströndinni
Hrossagaukar og keldusvín hafa nýlega hafið búsetu á Húsavík en Þing-
eyjarsýsla hefur hingaö til ekki verið dvalarstaður þeirra. Nú ber nýrra við
því að við Húsavík hafa tvö ný lón myndast og það af mannavöldum. Ann-
að er til busls og baða, hitt fyrir veiði. Orkuveita Húsavíkur stóð fyrir gerð
mannvirkjanna og veitir upphituðu vatni, sem hefur verið kælt, út í lónin.
Á „baðströndinni" er 250 sekúndulítrum vatns dælt út í tíu þúsund fer-
metra lón sem er dýpst 2 1/2 metri og milli 20 og 30 gráða heitt. Á dag-
skrá er að koma upp búningsklefum fyrir náttúrusullara sem hafa tekið
miklu ástfóstri við lónið. Orkuveitan hefur unnið að trjárækt í kringum lón-
in en mikið berjaland er á svæðinu. í haust gátu menn tínt upp í sig blá-
ber meðan þeir svömluðu í heitu vatninu. Hitt paradisarlónið er sjötíu
þúsund fermetrar að stærð. Orkuveitan hefur sleppt 900 eins til tveggja
punda sjóbleikjum út í vatnið og gert er ráð fyrir að nokkur þúsund fiskar
bíði öngulsins með vorinu. I tengslum við verðandi aflabrögð í vatninu
verður boðið upp á kennslu í fluguköstum og fluguhnýtingum í apríl og
maí. Reyndir veiðimenn munu sjá um kennsluna en hægt verður að velja
um tveggja og þriggja nátta veiðipakka þar sem innifalin verður gisting,
fæði, akstur á veiðistað og kennsla, en einnig sjóferð og sjóstangaveiði,
ef áhugi er fyrir hendi og veður leyfir. Nánari upplýsingar fást í Gistiheim-
ilinu Árbóli á Húsavík, sími 464 2220.
Ostabað og blikk í vita
Húsvíkingar eru ekki par hrifnir af þvi að Ijóstra upp einu best geymda leyndarmáli bæjar-
ins, en lífið er stutt og um að gera að hafa gaman af því. Eftir torfæruakstur upp á Húsa-
víkurhöfða má nefnilega hita kroppinn í 10 prósent saltvatni i gömlu sporöskjulaga osta-
kari. Á veöurbörðum vegg stendur skýrum stöfum: Heilsubað fyrir psoreasis og exsemis-
sjúklinga. Ekkert leyndarmál þar á ferðinni. Upphitaður skúr skýlir ostabaðsgestum meðan
þeir tína af sér spjarirnar en sjálfsagt er ekki minna kelað i skúrnum þeim arna en í osta-
karinu góða. Fastagestir mæta í karið mörgum sinnum í viku því fátt þykir jafnfullnægjandi
og það að liggja í heitri saltupplausn og horfa á innrás norðurljósanna í kolsvartan himin-
inn og draga augað I pung á móti einmanalegu blikkinu úr vitanum í Grímsey.
102 SKÝ HETJUR NORÐURSINS