Ský - 01.02.2001, Blaðsíða 113
GUNNHR 5MRRI
BLHÐRMHÐUR
Þegar Gunnar Smári Egilsson blaðamaður hélt upp á tvítugsafmælið sitt
hafði hann átt heima á fimmtíu og fjórum stöðum. Tölfræðiútreikningar
sýna að drengurinn Gunnar Smári hafi þurft að venjast nýju útsýni um
þrisvar sinnum á ári. Eftir tvítugt hefur hann margoft burðast með kassa
milli húsa en þó hefur dregið lítillega úr flutningum hin síðari ár. Ský fékk
Gunnar Smára til að líta yfir farinn veg og tína upp úr glatkistunni fáein
eftirminnileg stræti.
Krosseyrarvegur í Hafnarfiröi
..Neðar í götunni bjó sjómannskona með
páfagauknum Vargasi. Hann var skírður
í höfuðið á forseta Brasilíu. Konan átti
dómaraflautu og flautaði ef hana vanhag-
aði um eitthvað. Þá kom einhver krakkinn
úr hverfinu og skaust út í búð fyrir hana.“
Seljavegur
..Fyrsta sjónvarpið í hverfinu kom heim til
Bjarna. Hann var kallaður Bjarni sjónvarp."
Tjarnarstígur á Seltjarnarnesi
..Maðurinn í kjallaranum málaði gluggakist-
urnar hjá sér með trélími. Það varð glært
Þegar það þornaði. Hann fékk að hringja
hjá okkur í húseigandann, séra Árelíus, til
að segja honum fréttirnar. Hann sagði að
sér hafi fundist límið fallega hvítt í brúsan-
um og kallaði prestinn Áralíus."
Ljósheimar
..Þegar strákur t blokkinni settist við mat-
arborðið heima hjá sér fengu allir slátur
°g rófustöppu á diskinn sinn - nema
hann. Hann fékk rófustöppu og lopavett-
^nS- Mamma hans vildi venja hann af því
að naga vettlingana stna.“
Reykjanes viö ísafjaröardjúp
..Hansi kokkur keypti reykt hrefnukjöt og
bauð fyrst upp á það með uppstúf og kart-
öflum. Þegar enginn vildi borða það lengur
hafði hann það ofan á brauð. Sneiðarnar
með reykta hrefnukjötinu lágu fljótlega
óhreyfðar á fötunum eftir kaffitímana. Þá
hvarf það um tíma. Löngu stðar var kjöt í
raspi t matinn. Þegar við skárum fyrsta
bitann kom reykta hrefnukjötið t Ijós."
Rómarstræti á Súgandafiröi
..Það voru fimm stelpur á sextánda ári á
Súganda. Tvær þeirra áttu börn og önnur
Þeirra var ólétt af öðru barni stnu. Það var
sagt að það væru tvenns konar fermingar-
kyrtlar t kirkjunni á Súganda; venjulegir og
óléttukyrtlar."
Tjarnargata
„Nágranni okkar úr rússneska sendiráðinu
kom alltaf yfir þegar það var partt. Hann
hafði gítarinn sinn með og söng Bob Dylan
þangað til hann var beðinn að hætta."
Ólafsbraut í Ólafsvík
„í næsta herbergi á verbúðinni bjuggu
tveir strákar úr Ananda Marga. Það eina
sem þeir gátu borðað t mötuneytinu voru
kartöflur, rauðkál og grænar baunir. Af trú-
arlegum ástæðum þurftu þeir að fara
þrisvar á dag í sturtu en heita vatnið
dugði ekki nema fyrir einn. Það bjuggu
sexttu manns t húsinu. Þegar þvotti var
stolið af snúru t þorpinu leitaði löggan í
verbúðinni."
Sólvallagata
„Nágrannakonan stóð í tröppunum og rak
á eftir eiginmanni sínum þar sem hann var
að leita í ruslatunnunum. Ég er að verða
of sein, sagði hún. Bíllyklarnir hljóta að
vera hérna einhvers staðar, sagði maður-
inn ofan í eina tunnuna."
Akureyri
„Þegar menntskælingarnir t stigaganginum
héldu partt voru hátt í þrjáttu pör af Ktna-
skóm fyrir utan hurðina. Ég velti fyrir mér
hvernig fólkinu gengi að finna skóna stna
aftur þegar það færi í Sjallann."
Óslandsvegur á Höfn
„Við migum saman undir vegg, ég og lífs-
reyndari verbúðarrotta. Hann horfði
hugsandi á bununa frá sér. Það er
merkilegt, sagði hann, að hlandið verður
glært þegar maður drekkur mikið. Ég var
einu sinni á Kanaríeyjum í fjórar vikur og
fór ekki að pissa gulu fyrr en viku eftir að
ég kom heim."