Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 20

Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 20
Ávaxtaskálar og öryggisleysis, klæðaburður minn og fas stakk í stúf og mér stóð stuggur af jafnhversdagslegum hlut og strætisvagni. En ég var ákveðin í að taka þetta allt með trompi og komast fljótt inn í borgarlífið." FEIMINN í MENNTÓ En hvar skyldi Magnús Kjartansson hafa alið manninn á meðan Kogga teiknaði og teiknaði fyrir austan? Jú, hann teiknaði og teiknaði fyrir sunnan. „Ég er Reykvíkingur. Úr Austurbænum, en samt KR- ingur!", sagði hann með áherslu og var auðvitað krafinn nánari skýringar. „Afi minn og amma bjuggu rétt hjá KR-heimilinu. Það var ein ástæðan. Svo þóttu mér svörtu og hvítu búningarnir afskaplega fallegir. Ætli það hafi ekki verið aðalástæðan!" Magnús fylgir yfirlýsingunni úr hlaði með tvíræðu brosi, svo ég hafði eiginlega ekki hugmynd um hvort það bæri að taka hann alvarlega. Þegar hér var komið sögu, glumdi hávær popptónlist yfir hinn virðulega matsal á Hótel Borg, svo það varð vonlaust að halda uppi samræðum af nokkru viti. Auðmjúkur þjónn upplýsti, að þetta væru Skriðjöklar að æfa fyrir tónleika síðar um kvöldin, en hávaðann myndi lægja eftir örfáar mínútur. Við biðum þess róleg. Kogga tjáði okkur Magnúsi á táknmáli, að Skriðjöklarnir væru að norðan. Hann svaraði, á sama máli og sagðist oft undra sig á því hvað hún Kogga vissi. . . um ótrúlegustu hluti. Handapatið barst síðan að Akureyrarbæ, kostum hans og göllum og endaði með yfirlýsingu Magnúsar um að hann hefði aldrei komið í umrætt pláss. „Ha, hefurðu aldrei komið til Akureyrar?", hrópaði Kogga upp yfir sig í mikilli forundran. „Hann Magnús er alltaf að koma mér á óvart!" Akureyringarnir hættu fljótt spileríinu og fólkinu í salnum gafst aftur kostur á að melta sérrétti dagsins. Við Magnús tókum upp þráðinn við KR-heimilið. „Mamma mín var ekkja og vann mikið úti. Ég sótti þess vegna töluvert til föðurforelda minna vestur í bæ. Afi var mikill listsafnari og náinn vinur Kjarvals, Þórbergs og fjölda annarra listamanna. Ég kynntist því ýmsum stefnum og straumum á því heimili og sá snemma myndir á veggjum — öfugt við Koggu. Þetta var afskaplega lifandi og litríkt fólk, sem ég hitti hjá afa og ömmu. Ungmennafélagsandinn sveifenn yfir vötnunum. Ég tel mig raunar mjög heppinn að hafa kynnst þessu fólki og hugsunarhætti þess." Magnús fór í bóknám og lauk stúdentsprófi úr hinum virðulega Menntaskóla í Reykjavík árið 1969, áður en hann hvarf á vit listagyðjunnar í Myndlista og handíðaskólanum. Hann kvað það hafa komið eins og af sjálfu sér að hann fór að mála: „Sem barn málaði ég leirfígúrur, síðan smíðaði ég flugmódel, en eftir að ég rakst óvart á liti inni í geymslu komst fátt að annað en málverkið", sagði Magnús og kímdi aftur, þannig að ég vissi ekki hvort hann var að segja satt eður ei. „Og nú er ég eiginlega kominn aftur í leirinn", bætti hann við. Grafalvarlegur. Hvað með menntaskólaárin, „bestu ár ævinnar"? Magnús Kjartansson málaði í menntó. Hélt meira að segja sýningu á þessum árum. „Ég var alltaf heima að mála. Fór lítið. . . enda mjög feiminn og óframfærinn. Ég þorði einfaldlega ekki út á lífið. Þetta breyttist, þegar ég kom í Myndlistaskólann. Þá fór ég strax að verða svolítið „bóhem", en það var ógurlega mikil upplifun að koma í þennan skóla eftir agann í MR. Þetta var forkostulegt ævintýr." Sömu sögu var að segja um Koggu, nýsloppna úr ströngum heimavistarskóla í sveit. Hver dagur í Handíðaskólanum var henni sem opinberun. Næstum eins og allt gæti gerst. HANDVERK í MEIRI METUM ERLENDIS í skólanum hittust þau og hafa búið og unnið saman í ein 16 ár síðan. Magnús hefur lagt aðaláherslu á málverkið, Kogga á leirinn, en undanfarin ár hefur hann þó í síauknu mæli farið að vinna með henni við leirlistina. Nánar um það og nú töluðu þau hvort í kapp við annað: „Það hefur lengi verið draumur hjá okkur að miðla leirlistinni sjálf, vera í nánu sambandi við fólk í því 20

x

Hönnun: húsgögn og innréttingar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hönnun: húsgögn og innréttingar
https://timarit.is/publication/1814

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.