Verzlunartíðindi - 01.08.1962, Síða 7

Verzlunartíðindi - 01.08.1962, Síða 7
STOFNAÐ IF Kaxipmaniiafélag Isafjarðar Fimmtudaginn 28. júní s.l. var haldinn stofn- fundur Kaupmannafélags ísafjarðar. Til þess tíma hafði ekki verið starfandi almennt kaup- mannafélag á ísafirði, en þó höfðu nokkrir vefn- aðarvörukaupmenn bundizt samtökum um sér- hagsmunamál sín fyrir nokkrum árum. Á s.l. vetri komu flestir kaupmenn á Isafirði saman til fundar og var það einróma álit allra fundarmanna, að brýn nauðsyn væri á því að þeir stofnuðu með sér félag til þess að vinna að hags- munamálum sínum. Var þá kosin 5 manna nefnd til þess að vinna að undirbúningi félags- stofnunar. í undirbúningsnefnd áttu sæti kaup- mennirnir Jón Bárðarson, Kristján Tryggvason, Gunnlaugur Jónasson, Aðalbjörn Tryggvason og Ágúst Leós. Lauk nefnd þessi störfum og boð- aði til fundar 28. júní s.l. eins og fyrr segir. Á þessum fundi voru mættir flestir kaupmenn á ísafirði og var þar gengið frá félagsstofnuninni, en félagið heitir Kaupmannafélag ísafjarðar. Er starfssvæði þess ísafjörður og nágrenni, það er kauptúnin Hnífsdalur og Bolungarvík. Á fundinum voru afgreidd lög fyrir félagið og kosin stjórn þess. Stjórnina skipa Jón Bárðar- son, formaður, en meðstjórnendur Gunnlaugur Jónasson og Aðalbjörn Tryggvason. í varastjórn voru kosnir þeir Kristján Tryggvason og Ágúst Leós. Fundurinn ákvað að gerast aðili að Kaup- mannasamtökum íslands, og var aðalfulltrúi félagsins í stjórn Kaupmannasamtakanna kosinn Jón Bárðarson, en varafulltrúi Kristján Tryggva- son. Á þessum stofnfundi félagsins voru mættir Sig- urður Magnússon, formaður Kaupmannasam- taka íslands og Sveinn Snorrason, framkvæmda- stjóri þeirra, en Kaupmannasamtökin hafa að- stoðað undirbúningsnefndina við undirbúning- inn að félagsstofnuninni. Flutti Sveinn erindi um stofnun og störf Kaupmannasamtakanna og hinna einstöku aðildarfélaga þess frá upphafi, en Sigurður Magnússon um þau verkefni, sem Kaup- mannasamtökin og aðildarfélög þess ættu nú helzt við að glíma og þau mál, sem úrlausnar biðu í framtíðinni. Mjög mikill áhugi ríkir meðal kaupmanna á Isafirði um eflingu þessa nýja kaupmannafélags. Afnám tekjuskatts af almennum tekjum manna. Hófleg skattlagning á atvinnureksturinn, m. a. með afnámi veltuútsvara og möguleik- um til eðlilegra afskrifta og endurnýjunar. Einn útsvarsstigi lögboðinn um land allt. Sveitarfélögum fenginn hluti söluskatts, til þess að gera þeim kleift að lækka útsvörin. Réttlát skattalög, heiðarleg framtöl, er það, sem að er stefnt. 2) Enn eru ýmis atriði í skattalögum, sem þurfa endurbóta við. Meðal þess, sem gera þarf, er að veita atvinnurekstri einstaklinga réttindi sambærileg þeim, sem félagsrekstur hefur, um varasjóð, skatthámark o. fl. Ég hef falið ríkisskattstjóra nánari athugun og undirbún- ing þess máls. B) Athuganir hafa farið fram á því, hvort unnt væri að nema burt verstu annmarka þessara ranglátu og rangsnúnu laga. Um niðurstöður er ekki hægt að fullyrða neitt á þessu stigi. Verzlunartíðindin þakka fjármálaráðherra svör hans við framangreindum spurningum og þær upplýsingar, er þar koma fram. íslenzkir kaupsýslumenn og raunar landsmenn allir fagna því, sem áunnizt hefur í því að skapa réttlátari skattalöggjöf, þegnunum og þjóðarbú- inu í heild til góðs og gera kröfu til þess, að unn- ið verði markvisst áfram að endurbótum á þessu sviði, unz fullu jafnrétti er náð. VERZLUNARTÍÐINDIN 55

x

Verzlunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.