Bókatíðindi - 01.12.2008, Side 187
FYRSTA ÍSLENSKA
LÖGFRÆÐIORÐABÓKIN
ER KOMIN ÚT
Bókaútgáfan Codex og Lagastofnun Háskóla (slands
hafa nú gefið út ritið Lögfræðiorðabók - með
skýringum. Ritið er hið fyrsta sinnar tegundar hér á
landioginniheldurháttá þrettánda þúsundflettiorð
úr íslensku lagamáli, bæði úr gildandi og eldra rétti,
ásamt viðeigandi skilgreiningum og skýringum. Að
baki verkinu liggur umfangsmikil vinna á vegum
Lagastofnunar undir ritstjórn dr. Páls Sigurðssonar
prófessors. Fjölmargir sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum lögfræðinnar komu að skýringu hugtaka
af sínum réttarsviðum, flestir þeirra kennarar við
lagadeild Háskóla íslands.
Ritið hefur ótvirætt notagildi fyrir lögfræðinga,
einkum dómara, lögmenn og starfsmenn stjórn-
sýslunnar, sem og þá sem koma að samningu laga og
reglna. Jafnframt getur ritið nýst laganemum við að
skilja og beita hinu fjölskrúðuga íslenska lagamáli.
Ritiðerekkisíðurgagnlegtfjölmiðlamönnum íþeirra
störfum, en fréttaflutningur af lögfræðilegum
málefnum vegur þar að jafnaði þungt. Síðast en
ekki síst er ritinu ætlað að höfða til alls almennings
í landinu og stuðla þannig að auknum skilningi á
lögfræðilegri orðræðu, en með réttri notkun orða
og hugtaka og þekkingu á þeim verður almenn
umfjöllun um dómsmál og lögfræðileg málefni
bæði aðgengilegri og markvissari.
Listaverð: 9.900 kr.
Útsölustaðir eru m.a.: Bóksala Úlfljóts, Lögbergi,
Bóksala stúdenta, Háskólatorgi og Penninn-
Eymundsson, Holtagörðum.
LÖGFRÆÐl ORÐ ABÓK
MEÐ SKÝRINGUM
Eftirfarandi er dæmi úr ritinu um skýringu á lög-
fræðilegu hugtaki, sem nýverið bar á góma í fjöl-
miðlaumræðu:
„Borgaraleg óhlýðni"
Það að borgarar hlýðnast ekki fyrirmælum yfirvalda, á hug-
sjónagrundvelli, þ.e. ef þeir telja fyrirmælin stangast á við grunn-
reglur siðgæðis og réttlætis, enda þótt þau kunni að samræmast
lagaákvæðum. Felst þá í hugsuninní að mönnum beri í raun réttri
skylda til, sem dyggum borgurum, að óhlýðnast fyrirmælunum ...
BÓKAÚTGÁFAN
CODEX
4t»*»LAGADEILD HÁSKÓLA Islands
'Sls.l*'
Bókaútgáfan Codex I Lögbergi, Háskóla íslands I 101 Reykjavik I 562-8202 I www.bc.is