Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 3
BOKASAFNIÐ
25. árgangur
Efni
blaðsins
2 Að flytja fjall: flutningur aðalsafns Borgarbóka-
safns frá Esjubergi í Grófarhús / Erla Kristín
Jónasdóttir og Ingibjörg Rögnvaldsdóttir
7 Upplýsingalæsi - nauðsynleg kunnátta á nýrri
öld : þróun hugtaks / Ingibjörg Sverrisdóttir
12 Rafrænar bækur / Hrafnhildur Hreinsdóttir
15 Landskerfi bókasafna : Um val á sameiginlegu
tölvukerfi fyrir íslensk bókasöfn / Dögg Hrings-
dóttir, Elísabet'Halldórsdóttir og Sigrún Hauks-
dóttir
24 Rafrænt rannsóknarbókasafn / Sigrún Klara
Hannesdóttir
31 Flutningur bókasafns Þjóðminjasafnsins / Gróa
Finnsdóttir
35 Tvö ljóð / Sindri Freysson
36 Um aðgang bókasafna, stofnana og einstak-
linga ^að erlendum og innlendum gagnasöfn-
um: samantekt úr skýrslu nefndar á vegum
menntamálaráðuneytisins 1999 / Sólveig Þor-
steinsdóttir
49 Landsaðgangur að rafrænum tímaritum : könn-
un á viðhorfi bókasafna / Erna G. Árnadóttir
53 Slóvenía sótt heim : af ráðstefnu í Landsbóka-
safni Slóveníu - Háskólabókasafni, Ljubljana, í
september 2000, um fjölþjóðlegt orðasafn í
bókasafns- og upplýsingafræði : sitthvað um
bókasöfn í Slóveníu / Guðrún Karlsdóttir
59 Bækur og líf
63 Lestur
66 Afgreiðslutími safna í mars 2001
71 Höfundar efnis
7 2 Fleyg orð um bækur
Frá ritstjóra
Um þessar mundir lifum við mikil tímamót í ís-
lenskum bókasafnamálum. Ekki aðeins höf-
um við stigið fyrstu skrefin inn í nýja öld held-
ur sjáum við nú einhver stærstu samvinnu-
verkefni í allri sögu starfsvettvangs okkar verða að veru-
leika.
Fyrst skal nefna samninga um landsaðgang að fjölda
gagnagrunna á breiðu fræðasviði. Fyrir þau yngstu í stétt-
inni sem alist hafa upp með Internetið á skrifborðinu
virðist þetta kannski ekki vera neitt tiltökumál, svipað því
að sækja sér margvísleg gögn með aðstoð leitarvéla. En við
sem munum fyrirhöfnina og kostnaðinn við að fá aðgang
að fyrstu tölvuvæddu gagnagrunnunum í kringum 1980
fmnst mörgum sem við séum að upplifa kraftaverk.
Ekki er síður markvert að nú hillir undir að loksins
takist að sameina íslensk bókasöfn í eitt bókasafnskerfl
og eina samskrá. Sameining af svipuðu tagi var reynd
áður fyrir rúmum áratug en tókst þá ekki af ýmsu ástæð-
um, ekki síst vegna þess að tæknin til netsamskipta var
enn tiltölulega veikburða og kostnaðurinn ofviða flest-
um smærri bókasöfnum. En nú hefur orðið bylting í
þessum efnum og akreinunum á upplýsingahraðbraut-
inni fjölgar sífellt og „vegatollarnir" lækka.
Bæði stýrast þessi miklu verkefni af sýn um aðgengi
allra landsmanna að þeim upplýsingum sem þeim eru
nauðsynlegar til að geta sinnt störfum sínum og rann-
sóknum, þroskast og menntast. Efni blaðsins ber merki
þessa því að megináherslan er á umfjöllun um rafræn
gögn og aðgengi að rafrænum upplýsingum.
Undirrituð stýrir nú útgáfu þessa blaðs í fyrsta skipti.
Það er vissulega erfitt að feta í fótspor Áslaugar Agnars-
dóttur sem stýrði fjórum síðustu blöðum af miklum
myndarskap en ég hef reynt að gera mitt besta. Kann ég
Áslaugu einlægar þakkir fyrir störf hennar og góðar ráð-
leggingar.
Ég vil loks þakka höfundum efnis, samstarfskonum
mínum í ritnefnd og öðrum sem hafa lagt hönd á plóg
fyrir þeirra framlag til blaðsins.
Dögg Hringsdóttir
Mynd á kápu: Ustaverkið Óður eftir Helga Gíslason myndhöggvara í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Ljósm. Kristín Bogadóttir.
Útgefandi / Publisher:
Upplýsing. Félag bókasafns- og upplýsingafræða
/ Information. The Association of Library and
Information Science
ISSN: 0257-6775
Heimilisfang / Address:
Bókasafnið,
c/o Dögg Hringsdóttir
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Tryggvagötu 15
101 Reykjavík
Eldri blöð fást hjá:
Þjónustumiðstöð bókasafna
Ritnefnd / Editorial board:
Dögg Hringsdóttir, ritstjóri/editor
Eva Sóley Sigurðardóttir, ritari
Hadda Þorsteinsdóttir, gjaldkeri
Kristín Ósk Hlynsdóttir, umsjón með netútgáfu
Gróa Finnsdóttir, meðstjórnandi
Auglýsingar: Hænir sf., Ármúla 36,108 Reykjavík
Sími: 533 1850, bréfsími: 533 1855
Prentun: Gutenberg
Letur: Caecilia 9 pt á 13 pt fæti
Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í
Library & Information Science Abstracts (LISA)
http://www.bokasafnid.is
ritnefnd@bokasafnid.is