Bókasafnið - 01.01.2001, Side 23
þeirra bættust við starfsmenn ýmissa fleiri almenn-
ings-, skóla- og sérfræðibókasafna. Einnig voru full-
trúar frá söfnum af landsbyggðinni. Um það bil 40
manns voru í rýnihópum og skiptust þeir í aðfanga-
og tímaritahóp, leitarhóp, millisafnalánahóp, sam-
skrárhóp, skráningarhóp og útlánahóp. Hlutverk
rýnihópanna var að leggja faglegt mat á þau þrjú kerfi
sem kynnt voru í lokaáfanga valsins.
Fyrsti undirbúningsfundur með rýnihópum var
haldinn með fjarfundarbúnaði 3. maí 2000. Rýnihóp-
unum var þar kynnt í hverju vinnan framundan fæl-
ist og jafnframt var reynt að ákveða tímasetningu
kerfiskynninga. Rýnihóparnir hittust næst á heils-
dags vinnufundi 22. ágúst. Þar var hópunum falið að
undirbúa spurningar fyrir framleiðendur kerfanna.
Spurningum og dæmum var skilað til nefndarinnar
sem setti þau upp þannig að aðgengilegt væri að
leggja mat á einstaka þætti. Starfsreglur rýnihópa
voru eftirfarandi:
Hvert kerfi skal skoðað og metið óháð öðrum
kerfum. Nauðsynlegt er að tryggja óvilhallt mat á
hverju kerfi. Til að auðvelda það ber að hafa eftir-
farandi grundvallarreglur í huga:
Einstaklingsskoðun:
• Hver fulltrúi í rýnihópi metur hvert atriði/
spurningu í sínum þætti og skilar athuga-
semdum ef með þarf.
Mat á atriðum / spurningum:
a Ófullnægjandi
Uppfyllir ekki kröfur útboðslýsingar.
b Sæmilegt
Uppfyllir ekki að fullu kröfur útboðslýsing-
ar en virkar þó.
c Gott
Uppfyllir að fullu kröfur útboðslýsingar.
d Frábært
Gerir meira en að uppfylla kröfur útboðs-
lýsingar.
• Hver fulltrúi í rýnihópi metur notendavið-
mót bókasafnskerfisins samkvæmt með-
fylgjandi eyðublöðum. Notendaviðmótið
skal metið óháð efnisinnihaldi. Skalinn er
1-9 og um huglægt mat er að ræða, svo sem
stíft - sveigjanlegt eða hræðilegt - frábært.
Mat rýnihóps:
• Að lokinni skoðun/prófun skal hver rýni-
hópur samræma niðurstöður sínar og gera
stutta umsögn um sinn þátt. Einnig þarf að
skila samræmdri notendaviðmótskönnun.
• Niðurstöðum hvers hóps skal skilað til
Kerfisnefndar ekki síðar en um hádegi á
þriðja degi hverrar kynningar.
• Til að tryggja óvilhallt mat á hverju kerfi
skal vinnuplöggum hvers fulltrúa einnig
skilað inn til nefndarinnar.
4.6 Kynningar á kerfum
Dagana 6. - 16. september 2000 voru kerfin þrjú, Un-
corn, Aleph og Horizon, kynnt á Hótel Sögu. Hver
kerfissali hafði þrjá daga til umráða. Fyrsta morg-
uninn var almenn kynning sem var opin öllum sem
áhuga höfðu. Á hverja kynningu komu um 80 manns.
Seinni hluta fyrsta dags og allan næsta dag prófuðu
rýnihóparnir sína þætti og fengu formlega kynningu
á þeim. Þriðji dagurinn var nýttur til fundar með
tækniráðgjöfum og formlegum fundi með nefndar-
mönnum. Rýnihóparnir skiluðu sjálfstæðri skýrslu
um kerfin í lok hverrar kynningar.
Nefndin fór síðan yfir niðurstöður rýnihópanna,
breytti áliti þeirra í töluleg gildi skv. fyrirfram skil-
greindum kvarða og vann úr þeim samanburðar-
töflur. Niðurstöðurnar voru kynntar fulltrúum rýni-
hópanna á fundi í menntamálaráðuneytinu 6. októ-
ber 2000. Við sama tækifæri fór fram óformleg skoð-
anakönnun meðal fundarmanna um hvernig þeir
vildu raða kerfunum þremur. Formleg og óformleg
niðurstaða hópanna var að öllu leyti samhljóða og
hljóðaði þannig að Aleph fékk hæstu einkunn, Uni-
corn varð í öðru sæti og Horizon í því þriðja.
4.7 Tæknileg högun
Við mat á tæknilegri högun kerfanna fékk nefndin til
liðs við sig þá Bjarna Júlíusson tölvunarfræðing og
Magnús Atla Guðmundsson starfsmann Reiknistofn-
unar Háskólans. Þeir sátu fundi með kerfissölum og
gerðu grein fyrir niðurstöðum sínum í áliti til
nefndarinnar.
4.8 Þjónusta og verð
Þegar hér var komið sögu var ákveðið að Horizon
kerfið kæmi ekki lengur til álita. Skoðaður var þjón-
ustuþáttur hinna tveggja kerfanna, Aleph ogUnicorn,
m.a. með heimsókn í þjónustuskrifstofur fyrirtækj-
anna í Bretlandi í nóvember 2000. Verð kerfanna
reyndist vera í meginatriðum sambærilegt en ná-
kvæmur samanburður á verði er torveldur vegna
mismunandi útfærslu á ýmsum lausnum.
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001
21