Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 31

Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 31
tækja í samvinnu við tölvunarfræðideild háskólans í Oulu. Þetta er mjög flókið verkefni þar sem ætlast er til að sérþarfir hverrar aðildarstofnunar séu uppfyllt- ar, t.d. aðgangur að tímaritum sem stofnunin hefur keypt en önnur söfn í kerfinu hafa ekki aðgang að. Viðmótið er hannað fyrir vís- indamenn, kennara og nemend- ur og bak við þessa hönnun ligg- ur mikil þekking á því hvernig menn leita að upplýsingum. Þróun FinELib byggir á upp- lýsingastefnu finnska mennta- málaráðuneytisins sem ber heit- ið: Education, training and research in the information society. A Na- tional Strategy 2000-2004. í þess- ari stefnu kemur fram að raf- ræna bókasafnið sé tengt hug- myndum ríkisstjórnarinnar um tækniþróun innan æðri mennta- stofnana. Finnar eru sú Norð- urlandaþjóð sem leggur fram mesta fjármuni í rannsóknir og æðri menntun og rafræna bóka- safnið er hluti af þessari heildar- sýn. Rafræna bókasafnið er þró- að í nánum tengslum við hug- myndir um að skapa finnskan Sýndarháskóla (Finnish Virtual University). Undir þessari regn- hlíf eru nú þegar haldin nám- skeið og kennsluefni undirbúið en rafræna safnið býður upp á margháttaða notenda- kennslu. Allir finnskir háskólar taka þátt í þessu verkefni og ætlunin er að Sýndarháskólinn hafi sínar eigin heimasíður með aðgengi að kennsluefni og öðru sem kennslan kallar á. Finnska rafræna rann- sóknarbókasafnið er talið kjarninn í þróun finnska Sýndarháskólans. Heimasíða FinELib er: http://www.lib.helsinki.fi/fmelib/ svenska/index.html Niðurstöður Norðurlöndin hafa haft hvert sína aðferð við þróun rafrænna bókasafna. Norræn samvinna hefur verið á takmörkuðum sviðum en alltaf annað veifið heyrast raddir sem segja að Norðurlöndin gætu gert miklu meira af því að sameinast um ákveðna verkþætti. Þessar fimm þjóðir eru samanlagt ekki fjölmennari en svo að þau ættu að geta gert sameiginlega samn- inga við seljendur rafrænna tímarita og gagnasafna. Á móti eru alltaf einhverjar raddir sem vilja ekki nána samvinnu og vilja heldur róa á eigin miðum og telja hag sínum best borgið með því að eiga ekki í of mikilli samvinnu við aðra. NORDINFO er stofnun sem fjármögnuð er af Nor- rænu ráðherranefndinni og er staðsett í Helsinki, Finnlandi. í lok árs 1999 var samþykkt verkáætlun fyrir starfsemi stofnunarinnar 2000-2002, en áður hafði stjórn- in samþykkt stefnumörkun til langs tíma þar sem sett var fram að stofnunin skyldi vinna að framgangi hugmyndar um Nor- rænt rafrænt rannsóknarbóka- safn. Þessi stefna felur í sér að NORDINFO styrkir sérstaklega norræn verkefni sem gagnast sem flestum Norðurlandanna og geta þokað málum áfram í átt til samhæfingar og samræm- ingar. í samræmi við þessa stefnu hefur NORDINFO veitt styrki til þróunarverkefna sem stuðla að framgangi hugmyndarinnar. Sem dæmi má nefna TIDEN, þróunar- verkefni varðandi yfirfærslu á efni af örfilmum yfir í stafrænt form, sem nefnt var hér að fram- an. Annað svipað verkefni er VESTNORD sem stýrt er frá ís- landi þar sem gamalt dagblaða- og tímaritaefni er myndað og sett í stafrænt form. Þetta efni er frá íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Samiskt rafrænt bókasafn er verkefni sem á að bæta aðgang Sama að sínum heimildum. Verkefnið er unnið í sameiningu af söfnum í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. SVUC, The Scandinavian Virtual Union Catalogue, er verkefni sem stefnir að því að hægt verði að leita í öllum sam- skrám á Norðurlöndunum í gegnum sameiginlegt notendaviðmót. Nokkur rannsóknarverkefni hafa verið styrkt svo sem samanburður á norrænum upp- lýsingastefnum og þróun á aðferðum við að gæða- meta heimasíður á mismunandi fagsviðum. Einnig má nefna styrk til að rannsaka gæði millisafnalána svo aðeins örfá verkefni séu nefnd. NORDINFO styrk- ir 15-20 ráðstefnur á ári þar sem bókasafnsfólk fær tækifæri til að mennta sig og halda við þekkingu sinni. NORDINFO hefur lagt sitt að mörkum til að styrkja samvinnuverkefni og stuðla að aukinni sam- vinnu með fjárframlögum til einstakra verkefna en öll verkefni sem stofnunin styrkir eru unnin af um- sækjendunum sjálfum og þeim stofnunum sem í hlut eiga. Norrænt rafrænt rannsóknarbókasafn er fram- tíðarverkefni sem vonandi verður að veruleika ein- hvern tíma í framtíðinni, en mikið vatn verður til BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.