Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 33
Gróa Finnsdóttir
Flutningur bókasafns
Þj óðminj asafnsins
reglum og því var lögð á það áhersla að framkvæmdin
tæki sem allra skemmstan tíma og verklag yrði
skipulagt út í hörgul. Þetta gekk eftir,
flutningarnir tókust í alla staði
ótrúlega vel og má það fyrst og
fremst þakka ítarlegri forvinnu og
skipulagningu en síðast en ekki síst
faglegum metnaði og dugnaði þeirra
sem að flutningunum stóðu. Því
hagaði þannig til að bókasafnið var
sú deild stofnunarinnar sem fyrst
flutti, eða í nóvember 1998, og höfðu
fyrstu drög að skipulagningu flutn-
ings þess legið fyrir í mars sama ár.
Leyfi ég mér að birta þetta fyrsta
uppkast hér með kostum þess og
göllum svo fólk geti frekar glöggvað
sig á því hverju beri fyrst að huga að
við slíkan flutning. Þessi drög áttu
þó eftir að breytast verulega þegar til
Greinarhöfundur og aðstoðarmaður hennar glíma uið kassa.
011 þekkjum við það rót sem fylgir í kjölfarið
á einföldustu flutningum og alltaf undr-
umst við hve mikið rými bækur úr einni
lítilli bókahillu geta tekið þegar þarf að
pakka þeim niður í kassa. Það gefur því auga leið að
þegar flytja þarf bókasafn heillar stofnunar er um
afar stórt verkefni að ræða þar sem taka þarf tillit til
ýmissa samverkandi þátta.
Að flytja stofnanabókasafn er um margt frá-
brugðið því að flytja eitt sjálfstætt bókasafn, s.s. al-
menningsbókasafn eins bæjarfélags. Þegar heil stór
stofnun flytur þarf að samhæfa flutninginn við hinar
ýmsu deildir hennar. Það þarf að raða flutningi deild-
anna í rétta tímaröð, ákvarða hver flytur fyrst og gera
samræmda kostnaðar- og rýmisáætlun með góðum
fyrirvara.
Þegar Þjóðminjasafn íslands var tæmt og flutt í
heild sinni, annars vegar í framtíðargeymsluhúsnæði
við Vesturvör í Kópavogi (munadeild, forvörsludeild
og ljósmyndadeild) og hins vegar að Lyngási 7 í
Garðabæ (bókasafn, skrifstofur, fornleifadeild, hús-
verndardeild, ásamt Húsafriðunarnefnd ríkisins og
Örnefnastofnun), hafði undirbúningur flutningsins
staðið í meira en ár. Hvers kyns tilfærsla á ómetan-
legum safngripum er með flóknari aðgerðum á þessu
sviði þar sem fara verður eftir ströngum alþjóðlegum
379 metrar bækur eru á bókasafninu sjálfu
1 kassi (ca. 42x32x24 cm) @ 79 kr. frá Kassagerð
Reykjavíkur
1 hillumetri = 2 kassar
1 bílbretti: 120x100 cm
12 bretti komast í hvern bíl
379 m x 2 kassar = 758 kassar
758 kassar @ 79 kr. = 59.882 krónur
6 kassar komast á grunnflöt hvers brettis x 3 hæðir = 18
kassar á bretti
18 kassar x 12 bretti = 216 kassar í bíl (ca. þrjár og hálf
ferð)
Bókakostur auk þessa í geymslum:
ca 75 kassar eldri rita safnsins (skráð og óskráð)
ca 50 kassar af óskráðu gjafasafni Þorvaldar Þórarins-
sonar og Fríðu Knudsen
*Eftir að sjálft bókasafnið verður flutt er eftir að flytja úr
geymslum bókasafnsins, þar sem bókum er þegar búið
að pakka í alls um 130 kassa, sem eru þó nokkuð stærri
en fyrrnefndir kassar frá Kassagerðinni.
‘Eftir að hillur verða tæmdar verða þær jafnóðum
teknar niður og settar upp á sínum stað
drög að flutningi pr. 23. tnars 1998
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001
31