Bókasafnið - 01.01.2001, Side 38

Bókasafnið - 01.01.2001, Side 38
Sólveig Þorsteinsdóttir Um aðgang bókasafna, stofnana og einstaklinga að erlendum og innlendum gagnasöfnum - Samantekt úr skýrslu nefndar á uegum menntamálaráðuneytisins 1999 Vorið 1998 skipaði menntamálaráðherra nefnd um aðgangbókasafna, stofnana og einstak- linga að erlendum og innlendum gagna- söfnum. Nefndarmenn voru fjórir. Formað- ur nefndarinnar var Sólveig Þorsteinsdóttir yfirbóka- safnsfræðingur, tilnefnd af Ríkis- spítölunum, en aðrir í nefndinni voru Jón Þór Þór- hallsson fram- kvæmdastjóri, til- nefndur af Rann- sóknarráði íslands, Andrea Jóhanns- dóttir forstöðumað- ur, tilnefnd af Lands- bókasafni íslands - Háskólabókasafni og Sigrún Magn- úsdóttir yfirbóka- vörður, tilnefnd af Félagi bókavarða í rannsóknabóka- söfnum. Nefndin lauk störfum í apríl 1999 og skilaði skýrslu til menntamálaráðuneytisins þar sem gerð var grein fyrir niðurstöðum, tillögum og starfi nefnd- arinnar. (Um aðgang bókasafna... 1999). Grein þessi er byggð á skýrslunni og lýsir forvinnu þeirri sem innt var af hendi áður en ráðist var í að semja um lands- aðgang að gagnasöfnum. Samkvæmt erindisbréfi var nefndinni „ætlað að gera yfirlit yfir þau gagnasöfn sem æskilegt væri að semja um aðgang að ásamt greinargerð um tæknileg- ar útfærslur varðandi tengingar við viðkomandi gagnasöfn. Þá átti nefndin að leggja fram tillögur um hvernig staðið skyldi að samningagerð og gera nokkra grein fyrir þeim kostnaði sem búast mátti við að yrði samfara samningunum. Nefndin átti einnig að leggja fram tillögur um með hvaða hætti mætti standa að sameiginlegri fjármögnun þeirra aðila sem þörf hafa fyrir aðgang að gagnasöfnum. Skyldi stefnt að því að nýta það fjármagn sem þegar var notað til áskrifta á hagkvæmari hátt. Markmið nefndar- innar var að að- gangur að umrædd- um gagnasöfnum yrði sem víðtæk- astur og nýttist sem flestum." Nefndin kann- aði áhuga bóka- varða á rannsókna- og sérfræðibóka- söfnum og al- mennings- og skóla- bókasöfnum á að sameinast um samning á landsvísu um aðgang að gagnasöfnum. Kannað var hversu mörg gagnasöfn þyrfti að semja um og hver kostnaðurinn væri við slíkar áskriftir. Nefndin gerði verðkönnun og kynnti sér einnig þjón- ustu og vöruframboð nokkurra birgja. Eftir að hafa skoðað gagnasöfn og verðupplýsingar birgja var Ijóst að mikill hagur var af því að semja á landsvísu. Birgj- ar vildu semja sérstaklega við einkafyrirtæki. Nefnd- armenn funduðu með fulltrúum hliðstæðra nefnda á Norðurlöndunum þar sem Norðurlandabúar voru að vinna við samskonar verkefni. Ýmislegt var hægt að gera í samvinnu við þá og læra af reynslu þeirra. Nefndin lagði til að áskriftum að gagnasöfnum yrði forgangsraðað í þrjá flokka og samið um áskriftir í þremur áföngum. Heildarkostnaður við þessa þrjá Kennslustund í rómuersfeum sfeóla. Lágmynd frá 3. öld. 36 BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.