Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 47

Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 47
Norðurlöndunum sameiginlega. í nýlegri úttekt á NORDINFO er sérstök áhersla lögð á hlutverk NORD- INFO í sambandi við breytingarnar sem eru að verða á safnkosti rannsóknabókasafna frá því að vera prentuð gögn yfir í aðgang að rafrænum gagnasöfn- um. Því eru það augljósir samnorrænir hagsmunir að rafrænn aðgangur að gagnasöfnum fyrir bókasöfn, skóla og einstaklinga sé sem greiðastur og að hann strandi ekki á því að ekki náist viðunandi samningar við birgja vegna smæðar einstakra landa. Þetta mál er mjög mikilvægt og þess eðlis að rík ástæða væri fyrir fulltrúa íslands í norrænu samstarfi, eins og t.d. NORDINFO, að taka málið upp á þeim vettvangi og leita hófanna á æðstu stöðum um virkt samstarf Norðurlandanna um val og innkaup á aðgangi að gagnasöfnum. Eins er full ástæða til að þjóðirnar ræði hvernig staðið hefur verið að fjármögnun slíks að- gangs í löndunum. Norræna ráðherranefndin um upplýsingasamfélagið er einnig mjög ákjósanlegur vettvangur fyrir umræðu af þessu tagi þar sem málið snertir öll Norðurlöndin og „NORDISK NYTTE" blasir við í þessu máli öllu. Mikilvægt er að fram komi að hvað fjármögnum varðar skiptast Norðurlandaþjóðirnar í tvo hópa. Finnar og Danir hafa valið þá leið að fjármagna að- gang að gagnasöfnum og þjónustu honum tengda sérstaklega og alfarið af hinu opinbera en Norðmenn og Svíar hafa valið að nýta það fjármagn sem veitt er til bókasafna og skóla jafnframt ríkisframlagi til að opna aðgang að gagnasöfnum. Nefndin leggur til að málið verði tekið upp í nor- rænu samstarfi, sem brýnt samnorrænt viðfangsefni. Jafnframt er lagt til að á sama tíma verði farið út í íslenskt tilraunaverkefni sem verði fjármagnað sér- staklega. í tilraunaverkefninu er lagt til að leitað verði eftir norrænu samstarfi eins og kostur er. Nefndin leggur til að áskriftum að gagnasöfnum verði forgangsraðað í þrjá flokka og samið um áskriftir í þremur áföngum. 1. Áskriftir að gagnasöfnum sem samkvæmt þarfagreiningu nefndarinnar voru mikil- vægust og ná jafnframt yfir flest fræðasvið. 2. Hagstæðir samningar um dýr gagnasöfn sem nýtast þröngum hópi, t.d. í læknavís- indum og raungreinum. Einnig verði samið um aðgang að rafrænum tímaritum. 3. Áskriftir að gagnasöfnum sem minni þörf er fyrir. Heildarkostnaður við þessa þrjá áfanga gæti orðið um það bil 50 milljónir króna meðan á tilraunaverk- efninu stendur. Þessi kostnaður er eingöngu vegna áskrifta að gagnasöfnunum. Kostnaður við aðgang að gagnasöfnunum í fyrsta áfanga er áætlaður 10,8 milljónir króna á ári. Nefndin leggur til að við fjármögnun hans verði valin finnska- /danska leiðin og kostnaður verði fjármagnaður alfarið með fjárveitingum frá hinu opinbera. í öðrum áfanga er kostnaður við aðgang að nauð- synlegum gagnagrunnum áætlaður 7 milljónir króna á ári. Hér leggur nefndin til að látið verði reyna á norsk/sænsku leiðina og söfnin greiði fyrir aðganginn sjálf. Einnig telur nefndin rétt að kanna aðgang bóka- safna að rafrænum tímaritum, en í því sambandi bendir nefndin á að áætlað er að um þessar mundir séu keyptar áskriftir að prentuðum tímaritum fyrir um 75 til 100 milljónir króna. Hér er tækifæri sem þarf að kanna nánar til hagræðingar og sparnaðar með rafrænum áskriftum . Þriðji áfangi er framtíðarverkefni sem þarf að skoða nánar en lauslega áætlaður kostnaður við hann er um 10 milljónir króna á ári. Lagt er til að stofnað verði til tímabundins verk- efnis um framkvæmdina, t.d. til 3ja ára, og að þeim tíma liðnum verði málið endurskoðað. Kostnaðaráætlun Áfangi 1: Gagnasöfn sem fyrir eru ásamt viðbótum: Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna fyrsta áfanga verði alfarið fjármagnaður með fjárveitingum frá hinu opinbera. Markmiðið er að gera gagnasöfnin og aðganginn að þeim sýnilegan og festa notkun þeirra í sessi. Einnig er óhjákvæmilegt að gefa verkefnis- stjórninni og verktakanum fjárhagslegt bolmagn til að semja við birgja. Að hluta til er hér um markaðs- kostnað að ræða. Hér er um nauðsynlegar viðbætur við þau gagnasöfn sem fyrir eru að ræða, sbr. niður- stöður þarfagreiningar nefndarinnar. Viðbætur: Svið Birgir Millj. kr Samningur Alfræðaorðabók EB 1,1 Allt landið Sj ávarútvegsmál Tækni og tölvumál Heilbrigðismál Fræðslumál Félagsmál Tækni og tölvumál CSA Ei Village 2,8 0,5 Norrænn Landbúnaður Líffræði og lífeðlisfræði Matvælaiðnaður Silver Platter 6,4 (tilboð til 1.9.99) Samtals 10,8 BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.