Bókasafnið - 01.01.2001, Blaðsíða 51
Erna G. Árnadóttir
Landsaðgangur að
rafrænum tímaritum
- Könnun á viðhorfi bókasafna
• Haukur Ingibergsson,
formaður, tilnefndur
af menntamálaráðherra,
• Eydís Arnviðardóttir,
tilnefnd af Rannsókna-
ráði íslands (RANNÍS),
• Gísli Sverrir Árnason,
tilnefndur af Sam-
bandi íslenskra sveita-
félaga,
• Sólveig Þorsteinsdótt-
ir, tilnefnd af Upplýs-
ingu, félagi bókasafns-
og upplýsingafræða,
• Þorsteinn Hallgríms-
son, tilnefndur af Lands-
bókasafni Íslands-Há-
skólabókasafni.
Verkefnisstjórninni er m.a.
ætlað að kanna tilboð um
1. Inngangur
í janúar 2000 skipaði menntamálaráðherra fimm full-
trúa í verkefnisstjórn um aðgang að gagnasöfnum.
Verkefnisstjórnina skipa:
Meðal þess sem nefndin lagði til var að könnuð yrði
þörf bókasafna fyrir aðgang að rafrænum tímaritum
og samið um hann á landsvísu. Nefndin lagði einnig
til að skipuð yrði verkefnis-
stjórn.
aðgang að gagnasöfnum
og koma með tillögur til
menntamálaráðuneytis
um kaup á aðgangi á landsvísu, tilhögun aðgangs og
fjármögnun. Ennfremur er lagt til að stjórnin leiti
eftir samvinnu við önnur Norðurlönd um sameigin-
legan aðgang að gagnasöfnum.
Aðdragandinn að því að verkefnisstjórnin var
skipuð var sá að vorið 1998 skipaði menntamálaráð-
herra nefnd um aðgang bókasafna, stofnana og ein-
staklinga að erlendum og innlendum gagnasöfnum. í
þeirri nefnd voru Sólveig Þorsteinsdóttir, formaður,
Andrea Jóhannsdóttir, Jón Þór Þórhallsson og Sigrún
Magnúsdóttir og skiluðu þau skýrslu í apríl 1999.
2. Landsaðgangur
að rafrænum
tímaritum
Fljótlega eftir að verkefnis-
stjóm um aðgang að gagna-
söfnum tók til starfa var
farið að kanna möguleika á
að semja um aðgang að
rafrænum tímaritum á
landsvísu. Á ráðstefnu sem
bar yfirskriftina „Stafræna
bókasafnið - aðgangur
bókasafna að gagnasöfnum
og rafrænum tímaritum“
og haldin var í Háskól-
anum á Akureyri 10. mars
2000, komu nokkrir fulltrú-
ar gagnagrunna og helstu
birgja s.s. Swets og Ebsco.
Verkefnisstjórnin fundaði
með þessum aðilum og í
þeim viðræðum kom fram
að ýmsar upplýsingar yrðu að liggja fyrir áður en
hægt væri að hefja viðræður um landssamning um
aðgang að rafrænum tímaritum. Þær upplýsingar
sem m.a. þurfti að hafa voru: fjöldi notenda, hvaða
tímarit væru keypt frá hverjum útgefanda og hvaða
tímarit eru nú keypt í prentaðri áskrift frá helstu
útgefendum. Þessar upplýsingar voru ekki allar
tiltækar í þeim kerfum sem í notkun eru.
Erna G. Árnadóttir bókasafns- og upplýsingafræð-
ingur var ráðin til að gera skrá yfir helstu erlendu
tímaritin sem nú eru keypt í áskrift hjá hinum ýmsu
Skrifari gœgist gegnum gat á Gregoríus 5. páfa. Smámynd
frá 10. öld.
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001
49