Bókasafnið - 01.01.2001, Page 56
Þátttakendur og viðmiðanir
Þegar ákveðið hafði verið að unnið yrði að þessu
verkefni á fjölþjóðlegum grunni voru teknar saman
viðmiðunarreglur til að styðjast við og þær sendar
þátttakendum ásamt samantekt um tæknilega þætti
og staðla sem framkvæmdin skyldi byggð á og fylgir
hér sýnishorn úr leiðbeiningunum.
Guidelines for editors/translators
In order to ensure compatibility of different lang-
uage segments and a minimum standard of uni-
form processing of the dictionary material,
please observe the following guidelines:
1. We expect your language version of the dic-
tionary to be returned in electronic form, any
reasonable word processor, preferably Word for
Windows (any version). For the results please
use one of the following formats:
* You can use the enclosed file and expand it
with your languagr equivalents; enter the
dollar sign ($) between English and your
language as
a field separator in this case: e.g.: 9#abeced-
ary$your language term
* or you can write an entirely new file com-
prising the sequence number
and your language equivalent only, separat-
ed by the dollar sign ($): e.g.: 9$your langu-
age term for„abecedary"
2. There will be a great variety of file formats and
special characters from a number of langu-
ages, and not all the languages follow the same
alphabetic order of the characters; to ensure
swift and error free conversion of the files
please send a sample of your character set (in
the correct alphabetic order) as used in the
dictionary (printed and in electronic form,
using the same text editor you are using for
the dictionary) in a single file or preceding the
dictionary file.
http://www2.ames.si/~ljnuk4/multi/guidelines.html
Þátttakendur fengu enska hlutann af orðasafninu í
rafrænu formi og einnig útprent af því og þýska hlut-
anum í bráðabirgðagerð til að vinna eftir. Þessi gögn
voru send út í fjórum stafrófsskiptum hlutum, fyrst
A-C, og síðan næsti hluti, D-L, þeim þátttakendum
sem höfðu gert skil á hlutanum á undan, þá M-R og
loks S-Z. Þátttakendur em mjög mislangt á veg komn-
ir eftir aðstæðum á hverjum stað. Snemma í ferlinu
var gerð tilraunakeyrsla í tölvu á gögnum á tékk-
nesku, slóvakísku, slóvensku, eistnesku, íslensku og
makedónísku, m.a. til þess að sjá hvernig mismun-
andi stafasett/stafróf kæmu út. Lagt var upp með
4.414 orða forða. Síðan hefur verið ákveðið auka við
orðasafnið 888 orðum úr stafrófinu öllu. í viðbótinni
er m.a. um að ræða hugtök sem nýlega hafa verið
tekin upp og koma t.d. fyrir í nýlegum orðabókum og
fagritum. Yfirlit fyrir árið 2000 hefur ekki verið gert
þegar þessari grein var skilað inn til prentunar, en á
ráðstefnunni í september kom fram að mikið hefur
bæst við á árinu 2000 frá því yfirlit var gert um
áramótin 1999/2000. Þá var staðan þessi (auk ensku
og þýsku gerðarinnar sem áður hefur verið getið):
* A - C, 1.371 færslur - 11 tungumál: Enska,
slóvenska og þýska; albanska, búlgarska,
tékkneska, eistneska, íslenska, lettneska,
makedóníska, pólska, rúmenska, slóvak-
íska, (bosníska, ungverska and litháíska enn
á vinnslustigi).
* D - L, 1.084 færslur - 9 tungumál: Enska,
slóvenska og þýska; albanska, tékkneska,
eistneska, íslenska, makedóníska, pólska,
rúmenska, slóvakíska.
* M - R, 1.256 færslur - 7 tungumál: Enska,
slóvenska og þýska; albanska, tékkneska,
eistneska, íslenska, rúmenska, slóvakíska.
* S - Z, 703 færslur - 6 tungumál: Enska, slóv-
enska og þýska; albanska, tékkneska,
eistneska, rúmenska, slóvakíska.
* Viðbótarhugtök, A-Z, 888 færslur: Send
þeim sem skilað hafa öllum hinum hlutun-
um, A-Z, jafnskjótt og skil hafa verið gerð.
Fjögurra til sex manna orðanefnd um hugtök og heiti
í bókasafns- og upplýsingafræði og skyldum greinum
hefur komið að yfirlestri á íslenska hlutanum, kafla
fyrir kafla eftir því sem verkinu hefur miðað áfram.
Orðasafnið verður fullbúið gefið út í bókarformi og
einnig á geisladiski. Sýnishorn er aðgengilegt á heima-
síðu verkefnisins:
http ://www2. arnes. si/~lj nuk4/multi/multi .h tml
Bakhjarl verkefnisins,
þjóðbókasafn Slóveníu
Landsbókasafn Slóveníu er einnig háskólabókasafn
fyrir Háskólann í Ljubljana, höfuðborg landsins. Safn-
ið er móðursafn í safnakerfi landsins og hefur m.a.
með höndum ráðgjafar- og eftirlitshlutverk gagnvart
öðrum söfnum. Það er leiðandi í hópi slóvenskra
rannsóknarbókasafna og rekur upplýsingamiðstöð
fyrir allt landið. Safnið var stofnað með tilskipun frá
Maríu Theresu árið 1774. Stofnbókakosturinn var 637
bækur sem bjargast höfðu úr eldsvoða í fýrrum Jesú-
ítaskóla. Bækurnar voru fluttar í nýtt bókasafn fræðslu-
miðstöðvar í Ljubljana, Lyceum, og kveðið á um að
safnið skyldi vera almenningi til afnota. Lyceum bóka-
safnið fékk skylduskil úr héraðinu Carniola skv. lög-
54
BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001