Bókatíðindi - 01.12.2014, Blaðsíða 72
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa70
S
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
Saga, ættfræði og héraðslýsingar
D
Byggðasaga Skagafjarðar VII
Hofshreppur
Ritstj.: Hjalti Pálsson
Sjöunda bindi í ritröðinni Byggðasaga
Skagafjarðar. Fjallar í máli og mynd-
um um 77 jarðir og smábýli í hinum
gamla Hofshreppi. Ábúendatal hverr-
ar jarðar 1781–2014. Bókin er í stóru
broti með á sjöunda hundrað ljós-
myndum og kortum.
488 bls.
Sögufélag Skagfirðinga
G
Deilur Hörmangarafélagsins
og Íslendinga 1752–1757
Jón Kristvin Margeirsson
Rannsókn á deilum Íslendinga og
verslunarfélags sem verslaði á Ís-
landi á 18. öld. Konungurinn Friðrik
V., hafði gefið Innréttingunum tvær
fiskiduggur og um haustið 1752 sigldi
Skúli Magnússon af stað með afla
sumarsins til Hafnar. Spruttu af þessu
deilur sem ekki voru útkljáðar fyrr en
vorið 1757.
539 bls.
Háskólaprent ehf
G
Eyðibýli á Íslandi 6. bindi
Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum
húsum í Suður-Múlasýslu og
Norður-Múlasýslu sumarið 2014
Umsj.: Gísli Sverrir Árnason og
Sigbjörn Kjartansson
Fjallað er um eyðibýli í Múlasýslum
í máli og myndum. Höfundar eru
háskólanemar í arkitektúr o.fl. grein-
um. Fyrri bindi ritverksins eru um
Suðurland, Vesturland, Vestfirði og
Norður land. Nánar á www.eydibyli.is
147 bls.
Eyðibýli-áhugamannafélag
G
Eyðibýli á Íslandi 7. bindi
Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum
húsum í Árnessýslu, Gullbringusýslu,
Kjósarsýslu og Vestmannaeyjum
Umsj.: Gísli Sverrir Árnason og
Sigbjörn Kjartansson
Fjallað er um eyðibýli á Suðvestur-
landi í máli og myndum. Höfundar
eru háskólanemar í arkitektúr o.fl.
grein um. Fyrri bindi eru um Suður-
land, Vesturland, Vestfirði, Norður-
land og Austurland. www.eydibyli.is
165 bls.
Eyðibýli-áhugamannafélag
D
Frá Bjargtöngum að Djúpi.
Nýr flokkur. 7. bindi
Ritstj.: Hallgrímur Sveinsson
Vestfirðingar eiga fáa sína líka. Kemur
það glöggt fram í Bjargtangabókun-
um sem nú eru orðnar 17. Margir
landskunnir og minna þekktir
höfund ar skrifa um vestfirskt mann-
líf. Fjöldi sögulegra ljósmynda sem
aldrei hafa birst áður. Mjög aðgengi-
legt verk fyrir alla sem hafa áhuga á
mannlífi í landinu.
160 bls.
Vestfirska forlagið
D
Grafningur og Grímsnes
Byggðasaga
Ritstj.: Sigurður Kristinn Hermundarson
Hér fjallað um Grafning, sögu og
mannlíf, á árunum 1890–2012 og
Grímsnes að hluta til, einkum Sogs-
virkjanir og Ljósafossskóla. Hverri
jörð er lýst og í ábúendatali er þráð-
urinn rakinn bæ frá bæ og grein gerð
fyrir ábúendum og niðjum þeirra.
Mikið ítarefni er hluti af verkinu, sem
og fjöldi merkra mynda.
302 bls.
Bókaútgáfan Hólar
STEINALDARVEISLAN
Mögnuð frásögn sem spinnur þræði um fjölskyldur og landslag í Höfðahverfi, á Látraströnd
og í Fjörðum með stórbrotnum mannlýsingum og hetjusögum af baráttu fólks í harðneskjulegu
umhverfi að fornu og nýju. Frásögnin ber með sér ríka tilfinningu fyrir öllum ríkjum náttúrunnar
og samleik þeirra frá upphafi lífsins; hún er rakin eftir genunum til samtíma – og uppistaðan í
þessum fjölþætta vef er lífssaga Valgarðs. Hann gengur nærri sjálfum sér og miðlar næmri sýn
á samferðafólk, skepnur, land og gróður þannig að úr verður margradda hljómkviða sem tekst
á við áleitnar spurningar um lífið á jörðinni og ábyrgð okkar á því. Sannarlega áhrifamikið verk
langreynds vísindamanns sem hefur lokað dyrum
rannsóknastofunnar á eftir sér og gerir hér upp erindi
fræða sinna við mannlífið. Flokagata 65 – 105 Reykjavik • Sími: 552-8989
www.sagaforlag.is • vinland@centrum.is
Valgarður Egilsson