Bókatíðindi - 01.12.2014, Blaðsíða 122
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa120
Útivist, tómstundir og íþróttir B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
D
Flottu fótboltabækurnar
Ronaldo
Sá allra flottasti
Illugi Jökulsson
Sumir héldu að Ronaldo væri farinn
að slaka á. Aldeilis ekki! Þessi portú-
galski snillingur hefur aldrei verið
betri. Í þessari litríku bók er ferli hans
fylgt allt frá æskudögum hans í fátækt
á Madeira og til þess er hann raðar
inn mörkum fyrir Real Madrid.
64 bls.
Sögur útgáfa
D
Skotveiði í máli og myndum 2
Ritstj.: Guðmundur Guðjónsson
Út er komin bókin Skotveiði í máli og
myndum 2. Bókin er sjálfstætt fram-
hald bókar er kom út árið 2009 og
er byggð upp með líku sniði. Skot-
veiðimenn segja sögur og miðla fróð-
leik. Veitt er innsýn inn í spennandi
heim skotveiðinnar. Bókin er ríkulega
myndskreytt.
180 bls.
Litróf ehf
D
Slaufur
Rannveig Hafsteinsdóttir
Gullfalleg bók sem geymir 47 fjöl-
breyttar en einfaldar prjónaupp-
skriftir að slaufum. Auk þess að vera
flott hálstau, geta þær prýtt hárbönd,
sokka, vettlinga, vínglös, ferðatöskur
... Möguleikarnir eru endalausir.
222 bls.
Salka
D
Flottu fótboltabækurnar
Stjörnurnar á HM 2014
Illugi Jökulsson
HM 2014 var eitt besta heimsmeist-
aramót sögunnar. Í þessari bók er
fjallað á frísklegan hátt um nokkrar af
helstu stórstjörnunum sem kepptu á
mótinu: Messi, Neymar, Robben, Ro-
naldo, Müller og marga fleiri.
64 bls.
Sögur útgáfa
D
Flottu fótboltabækurnar
Messi
Sá allra besti
Illugi Jökulsson
Hann er líklega einhver allra besti fót-
boltamaður sögunnar en hvað veistu
um hann? Lífleg og skemmtileg frá-
sögn, fullt af myndum og alls konar
staðreyndum um líf snillingsins allt
frá uppvexti hans í Argentínu fram á
þennan dag.
64 bls.
Sögur útgáfa
E
Molinn minn
Birna Varðardóttir
Molinn minn er saga íþróttakonu
sem glímdi við átröskun á unglings-
árunum. Hömlulaus fullkomnunar-
árátta verður henni að falli. Í bataferl-
inu reynir á viljastyrk, keppnisskap og
traust bakland.
70 bls.
Birna Varðardóttir
D
Flottu fótboltabækurnar
Neymar
Hinn nýi Pele
Illugi Jökulsson
Hann er sá sem á að færa brasilíska
fótboltalandsliðið aftur á sinn stall, og
hann hefur hæfileikana til þess! Litrík
og skemmtileg bók um Neymar allt
frá æskudögum hans í Brasilíu og til
Barcelona.
64 bls.
Sögur útgáfa
E
Prjónaást
Jessica Biscoe
Fersk og fönkí prjónaverkefni sem
eiga það sameiginlegt að geta töfrað
fram gleðina sem fylgir því að prjóna.
Áhugaverð bók fyrir alla þá sem njóta
þess að prjóna.
128 bls.
Bókafélagið (BF-útgáfa)