Bókatíðindi - 01.12.2014, Blaðsíða 124
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa122
Útivist, tómstundir og íþróttir B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
D
Vötn og veiði
Stangaveiði á Íslandi 2014
Ritstj.: Guðmundur Guðjónsson
Hvað gerðist helst í heimi stangaveið-
innar sl. sumar? Veiðimennirnir, veiði-
staðirnir, veiðisögurnar og helstu frétt -
irnar, allt á einum stað í þessari
fróð legu bók sem kemur nú út 26. árið
í röð. Fjöldi ljósmynda prýða bókina
og gefa henni lifandi og skemmtilegan
svip. Þetta er veiðibók sem allir áhuga-
menn um stangaveiði þurfa að eiga.
200 bls.
Litróf ehf
G
Wild Walking
Independent hiking in Iceland
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Þýð.: Katrina Downs-Rose
Hér vísar þaulreyndur útivistarmaður
til vegar um ýmsar vinsælustu göngu-
leiðir landsins: Kjalveg, Öskjuveg,
Lónsöræfi, „Laugaveginn“ og Fimm-
vörðuháls. Bókin er prýdd fjölda ljós-
mynda og korta og hentar bæði þaul-
vönum útivistarmönnum og minna
reyndum. Á ensku.
128 bls.
Forlagið – Mál og menning
G
Veiddu betur – Lax
Ritstj.: Guðmundur Guðjónsson
Í bókinni Veiddu betur – Lax er veitt
leiðsögn í laxveiði með tilliti til að-
stæðna sem blasa við veiðimönnum
á árbakkanum. Spáð er í hitastig lofts
og vatns, skýjafar, úrkomu, vatnshæð,
vindhæð og fleira. Farið er vandlega
yfir aðferðarfræðina með völdum
landsþekktum sérfræðingum. Bókin
nýtist jafnt byrjendum og lengra
komnum. Ríkulega myndskreytt.
72 bls.
Litróf ehf
G
Veiddu betur – Silung
Ritstj.: Guðmundur Guðjónsson
Í bókinni Veiddu betur – Silung er veitt
leiðsögn í allra handa silungsveiði með
tilliti til aðstæðna sem blasa við veiði-
mönnum hverju sinni. Spáð er í hita-
stig lofts og vatns, skýjafar, úrkomu,
vatnshæð, vindhæð og fleira. Farið
er vandlega yfir aðferðafræðina með
völdum landsþekktum sérfræðingum.
Bókin nýtist jafnt byrjendum og lengra
komnum. Ríkulega myndskreytt.
72 bls.
Litróf ehf
Sokkar, vettlingar, peysur, sjöl og
margt fleira sem útfært hefur verið
á nútímalegan og skemmtilegan hátt.
ÞJÓÐLEGT OG
FALLEGT PRJÓN
Fjölmargar uppskriftir byggðar á fatnaði og munum frá fyrri öldum
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsin s | F i sk i slóð 39
Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR HELGINA 22.-23. NÓV. 2014
Dagskrá hátíðarinnar má finna á www.bokmenntaborgin.is